Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

80. fundur
17. apríl 2023 kl. 16:30 - 17:30
Vöruhús
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir formaður
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Patrekur Máni Ingólfsson
Alexandra Guðrúnardóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Humarhátíð
Málsnúmer 202301049
Humarhátíðarnefnd hefur óskað eftir aðkomu ungmennaráðs við skipulag á dagskrá hátíðarinnar sem fram fer 22. - 25. júní. Nokkur "slott" eru opin í dagskrá fyrir ungmenni og því er óskað eftir fulltrúum ungmennaráðs í skipulagsvinnuna.
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir fór yfir fyrstu drög að dagskrá Humarhátíðar og hvaða tími væri frátekinn fyrir ungmennadagskrá.

Fulltrúar ungmennaráðs sýna Humarhátíðinni mikinn áhuga og eru sammála því að hún sé bænum mikilvæg, flæddu hugmyndirnar frá þeim.
Gott "rafe" ball, froðuball, ball með hljómsveitinni Nostralgíu, eldgleypar, sápubolti, andlitsmálning, lazertag, útivist með björgunarsveitinni, varðeldur og sykurpúðar, kökukast í kjörna fulltrúa er meðal þeirra viðburða sem ungmennaráð myndi vilja sjá á hátíðinni.
Nokkrum sinnum hefur ungmennaballið farið fram Íþróttahúsinu á Höfn, en ráðið veltir því fyrir sér hvort að salurinn þar sé ekki of stór fyrir slíkan viðburð og hvort að ungmennaball eigi ekki frekar heima í hátíðartjaldinu.

Fulltrúar Ungmennaráðs
Tómas Nói Hauksson, Selma Ýr Ívarsdóttir og Sigursteinn Ingvar Traustason bjóða fram krafta sína með Humarhátíðarnefnd.
2.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202010120
Í innleiðingarferli vegna barnvæns sveitarfélags er óskað eftir því að nefndir horfi á fræðslumyndbönd um Barnasáttmálann.Ungmennaráð horfir á tvö myndbönd tileinkuð ungmennaráði.
Ungmennaráð ætlar að hittast þriðjudaginn 25. apríl kl 20:00 og horfa saman á þau myndbönd sem ætluð eru ungmennaráðum.
3.
Líkamsræktarstöð - rekstur og uppbygging
Málsnúmer 202205045
Erindi barst frá fulltrúa ungmennaráðs um að ræða rekstur og uppbyggingu á líkamsrækt á Höfn í Hornafirði.
Fulltrúar ungmennaráðs hafa mikinn áhuga á líkamsræktinni á Höfn í Hornafirði og vilja leggja sitt á mörkum til að líkamsrækt þróist í jákvæða áttir, þau vilja því skoða hvað þarf til þess að hagkvæmt verði fyrir stærri aðila að reka rækt hérna á Höfn í Hornafirði.

4.
Ungmennaþing 2023
Málsnúmer 202304024
Samkvæmt erindisbréfi ungmennaráðs fer fram ungmennaþing á oddatölu árum.Stefnan er sett á 8. september.
Farið var yfir niðurstöður ungmennaþings 2019 og rætt um hver fyrstu skref væru í skipulagningu á slíku þingi. Ungmennaráð leggur til að þingið verði ungmennaþing sem er þá fyrir 13 ára og eldri en ekki barnaþing og uppsetningin verði í málstofuformi.

Hugmyndir af málstofum; félagslífið, viðburðir og hugmyndir að afþreyingu, hinseginfræðsla, netöryggi, samskipti, Loftslagskóli unga fólksins og fleira.

Unnið verður að vinnuplani svo skipulag verði komið vel á veg áður en sumarfrí hefst.
5.
Höfn í Hafnarfirði
Málsnúmer 202212135
Ungmennaráð vinnur að samstarfsverkefninu Höfn í Hafnarfirði og verður farið til Hafnarfjarðar 20. apríl 2023. Farið yfir dagskrá og skipulag.
Nú þegar ferðin er alveg að bresta á er spenningur orðin mikill. Farið yfir skipulagið, dagskráin skoðuð og verkum skipt niður.

Lagt verður af stað 08:00 næstkomandi fimmutdag og er dagskráin í Hafnarfirði þétt skipuð.