Ungmennaráð Hornafjarðar
81. fundur
8. maí 2023
kl.
16:30
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
formaður
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Patrekur Máni Ingólfsson
Alexandra Guðrúnardóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Loftslagsskóli unga fólksins (LUNG).
Ungmennaráð heimsækir sýningu Þorvarðar Árnasonar, Bláma í tengslum við Loftslagskóla unga fólksins.
Þorvarður Árnason sagði ráðinu frá hugmyndum sínum, pælingum og ástríðu fyrir náttúrufegurð jöklanna áður en ráðið fékk nokkrar mínútur til að sjúga í sig mikilfengleika sýningarinnar. Eftir það snérust umræðurnar sem Þorvarður stjórnaði ásamt Hugrúnu Hörpu um breytingar jöklanna undanfarin ár og þá sláandi staðreynd að líklega verða þeir horfnir eftir 150 ár.
Hvað hugmyndir hefur ungmennaráð og hvernig er hægt að miðla þeim áfram út í samfélagið með það að markmiði að spyrna við þeirri hamfararhlýnun sem veldur bráðnun jökla og öðrum loftslagsbreytingum?
Hvað hugmyndir hefur ungmennaráð og hvernig er hægt að miðla þeim áfram út í samfélagið með það að markmiði að spyrna við þeirri hamfararhlýnun sem veldur bráðnun jökla og öðrum loftslagsbreytingum?
2.
Humarhátíð
Ungmennaráð mun standa fyrir nokkrum viðburðum á Humarhátíð.Á fimmtudeginum stefnir ungmennaráð að viðburði í hátíðartjaldinu frá kl 19:00 - 23:00. Á laugardeginum verður Þrykkjan opin frá 13:00-16:00 og hljómsveitin Nostalgía mun vera með dansleik í Sindrabæ frá kl 20:00 - 23:00. Aðrar hugmyndir sem hafa komið upp en á eftir að ræða og þá útfæra eru t.d. rafe ball, froðuball, lazertag, útivist með björgunarsveitinni og kökukast í kjörna fulltrúa
Fulltrúar humarhátíðarnefndar fóru yfir þær hugmyndir sem ungmennaráð ræddi á síðasta fundi. Þar hafði verið rætt að salurinn í Íþróttahúsinu væri of stór fyrir ungmennaball og lagði Humarhátíðarnefnd það til að umræddur dansleikur færi fram í Sindrabæ. Aðrar hugmyndir voru ræddar og fundinn staður fyrir þær í dagskrá humarhátíðar.
Á fimmtudeginum mun ungmennaráð standa fyrir spurningaleik í anda pubquz í hátíðartjaldinu milli 19:00 - 22:00 með veglegum vinningum sem ungmennaráð ætlar að redda. Á laugardeginum mun ungmennaráð vera með útileiki á hátíðarsvæðinu t.d. hlussubolta og lazertag. Um kvöldið verður svo ungmennadansleikur með hljómsveitinni Nostalgíu í Sindrabæ. Fulltrúar ungmennaráðs sem munu hafa yfirumsjón með þessum viðburðum eru: Tómas Nói Hauksson, Sigurstein Ingvar Traustason og Selma Ýr Ívarsdóttir.
Á fimmtudeginum mun ungmennaráð standa fyrir spurningaleik í anda pubquz í hátíðartjaldinu milli 19:00 - 22:00 með veglegum vinningum sem ungmennaráð ætlar að redda. Á laugardeginum mun ungmennaráð vera með útileiki á hátíðarsvæðinu t.d. hlussubolta og lazertag. Um kvöldið verður svo ungmennadansleikur með hljómsveitinni Nostalgíu í Sindrabæ. Fulltrúar ungmennaráðs sem munu hafa yfirumsjón með þessum viðburðum eru: Tómas Nói Hauksson, Sigurstein Ingvar Traustason og Selma Ýr Ívarsdóttir.
3.
Ungmennaþing 2023
Á síðasta fundi ungmennaráðs var ákveðið að hafa ungmennaþing 8. september næstkomandi. Nú þarf ungmennaráð að hefjast handa við að skipuleggja það.Tveir fulltrúar ungmennaráðs taka að sér skipulagsvinnuna og stefna þarf að því að skipulagið sé komið á hreint fyrir lok maí mánaðar. Það sem þarf að gera er;4 málstofur?Hvar fer þingið fram?Hverjir stjórna málstofunum?Hvernig verða niðurstöður kynntar?Hvernig á að standa að kosningum í nýtt ungmennaráð?
Sigga fór yfir hvernig var staðið að þessum ungmennaþingum þegar hún starfaði með ungmennaráði. Ungmennaráð fór yfir málstofurnar og ákvað að vinna með Hornafjörður Náttúrlega sem þema í einni málstofu. Sigursteinn Ingvar Traustason og Stefán Birgir Bjarnason hafa verið skipaðir til að sjá um skipulagningu á umræddri málstofu og munu vinna það í samstarfi við verkefnastjóra á fræðslu og frístundarsviði.
Drög að málstofu og skipulagi verður tilbúið fyrir maí lok og verður kynnt fyrir ungmennaráði á síðasta fundi fyrir sumarfrí.
Drög að málstofu og skipulagi verður tilbúið fyrir maí lok og verður kynnt fyrir ungmennaráði á síðasta fundi fyrir sumarfrí.
4.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Í innleiðingarferli Barnvæns sveitarfélags er ætlast til að fulltrúar í nefndum og starfsfólk sveitarfélagsins horfi á ákveðin fræðslumyndbönd um barnasáttmálann og mikilægi þess að hafa börn með í ráðum. Ungmennaráð þarf að horfa á 3 myndbönd í innleiðingarferlinu og skila inn ákveðnum skírteinum sem þau fá eftir að hafa tekið kannanir við hvert myndband.
Fulltrúar ungmennaráðs munu horfa á innleiðingarmyndböndin og senda verkefnastjóra staðfestingar á áhorfinu.
5.
Höfn í Hafnarfirði
Ungmennaráð Hornafjarðar og ungmennaráð Hafnarfjarðar vinna sameiginlega að því að spá í fjölbreytileika ungmennaráða og velta því fyrir sér hvernig hægt sé að endurspegla betur fjölbreytileika samfélagsins í gegnum ungmennaráð. Helgina 1. - 4. júní munu fulltrúar ungmennaráðs Hafnarfjarðar koma til Hafnar í Hornafirði og vinna í þessu verkefni. Fulltrúar ungmennaráðs kynna skipulag vinnuhelgarinnar.
Formaður hornfirska starfshópsins Alexandra Guðrúnardóttir fór yfir þau verkefni sem hóparnir hafa verið að vinna. Peysuhópurinn hefur hannað og samþykkt logo og fengið fyrirtæki til að hanna og prenta peysurnar og má vænta þeirra á allra næstu dögum. Samfélagsmiðlahópurinn hefur verið að gera leikplan til að kynna sig á Tick Tock og Instagram samhliða heimsókninni hingað til Hornafjarðar. Handritsnefndin vinnur að fullu að handriti fyrir heimildarmyndina sem ungmennaráðin ætla að vinna saman að ásamt því sem tæknihópurinn er komin með flest þau tæki sem þau þarfnast. Skemmtinefnefndin leggur aðal áherslu á að skipuleggja lokapartý sem á að fara fram í Sindrabæ og hefst á einkapartýi en síðar um kvöldið mun húsið standa opið öllum ungmennum 13 ára og eldri. Allur undirbúningur og skipulag er því komið vel á veg og mikil stemning í hópnum.
6.
Ungmenni og afþreying
Skoða leiðar hvernig er hægt að virkja félagsmiðstöðina betur og gera hana aðgengilegri fyrir fjölbreyttari hóp með fjölbreyttari áhugamál. Eftir heimsókn ungmennaráðs Hornafjarðar til Hafnarfjarðar 20.-23. apríl langar fulltrúum í ráðin að skoða hvort og þá hvernig væri hægt að nýta húsnæði Þrykkjunnar að fyrirmynd Ungmennahússins Músík og Mótor. Farið verður yfir málið á fundinum.
Sigursteinn Ingvar Traustason kynnti hugmyndir sínar um hvernig væri hægt að nýta rýmið í Vöruhúsinu sem FAS hefur verið að nota undir málmsmíðakennslu sem aðstöðu fyrir ungmenni sem hafa áhuga á að gera við vélar og bíla og sækir fyrirmynd sýna í húsnæði ungmennahússins Músik og Mótor í Hafnarfirði. Ungmennaráði líst vel á hugmyndirnar og vill koma þeim áfram þar sem talið er húsnæðið verði lítið notað næsta vetur af FAS. Sigursteinn ætlar að hanna kynningu á hugmyndinni og mun verkefnisstjóri koma henni áfram í kerfinu.