Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

82. fundur
12. júní 2023 kl. 16:30 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir formaður
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Berglind Stefánsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð - Humarhátíð 2023
Málsnúmer 202305107
Ungmennaráð hefur tekið að sér að skipuleggja eftirfarandi viðburði á Humarhátíðinni.Skemmtun í KASK-tjaldinu á fimmtudagskvöldinu, bubblubolta á hátíðarsvæðinu á laugardeginum og ungmennaball á laugardagskvöldinu. Fulltrúar ungmennaráðs í Humarhátíðarnefnd eru: Tómas Nói Hauksson, Selma Ýr Ívarsdóttir og Sigursteinn Ingvar Traustason
Fulltrúar skipta á milli sín verkefnum sem þarf til að halda viðburðina.
Spurningastjóri, skipulagsstjóri og markaðssetning sem fer að mestu fram á samfélagsmiðlum til að hvetja ungt fólk að mæta á þá viðburðina.
Spurningastjóri sér um að búa til spurningar.
Skipulagsstjóri skipuleggur vaktir í tjaldi og á bubbluboltanum.
Markaðsstjóri peppar ungt fólk til að mæta á viðburðina.
2.
Ungmennaþing 2023
Málsnúmer 202304024
Þann 8.september 2023 stendur ungmennaráð fyrir ungmennaþingi í Nýheimum.Sjá fylgiskjal
Verkefnisstjóri hefur sett saman fyrirkomulag á málþinginu og vinnuplan í aðdraganda þess í samstarfi við tvo fulltrúa ungmennaráðsins.

Fyrirkomulagið var kynnt á fundinum og var ungmennaráðið sátt við það.
Málstofurnar verða fjórar en ungmennaráð velti því upp hvort hægt væri að koma inn málstofu sem inniheldur hvatningu til framhaldsskólans og hvernig megi efla áhuga unga fólksins sem er að klára 10. bekk að stunda nám í FAS.
3.
Höfn í Hafnarfirði
Málsnúmer 202212135
Höfn í Hafnarfirði er metnaðarfullt samstarfsverkefni milli ungmennaráða bæjarfélaganna tveggja og hefur verkefnið hlotið veglegan styrk frá Evrópusambandinu. Þar endurspegla ungmennaráðin sig og horfa á hvaða sameiginlegu verkefni þau mæta. Þrátt fyrir að vera úr ólíkum sveitarfélögum þá eru þau samt mjög lík.Megin spurningarnar sem leitað er svara við í verkefninu eru; Endurspegla ungmennaráð fjölbreytileika samfélagsins?Hvernig má gera gott betra ?Á meðan flestir Hornfirðingar fögnuðu sjómannadeginum var ungmennaráð Hornafjarðar gestgjafar Hafnfirðinganna og unnu ráðin saman að þessu verkefni og rýndu í umræddar rannsóknarspurningar. Veðrið vann með hópnum sem naut þess að fara út í náttúruna og vinna að verkefninu saman.Fyrr í vor voru Hornfirðingarnir í Hafnarfirði þar sem tíminn var notaður í fræðslu um fjölbreytileika og var markmið helgarinnar að vinna úr þeim fróðleik.
Ungmennaráðið er ótrúlega ánægt með hvernig verkefnið gekk og hlakka allir til þess að sjá afraksturinn. Þar sem klippivinnan er stærsta verkefnið sem eftir er, var lagt til að verkefnastjórn kaupi þjónustu hjá klippara til að setja efnið saman. Klipparinn yrði í nánu samstarfi við eftirvinnslustjórnina. Ungmennaráðið styður þetta.

4.
Ungmenni og afþreying
Málsnúmer 202210021
Skoða leiðar hvernig hægt væri að virkja félagsmiðstöðina betur og gera hana aðgengilegri fyrir fjölbreyttari hóp með fjölbreyttari áhugamál.Eftir heimsókn ungmennaráðs Hornafjarðar til Hafnarfjarðar 20.-23. apríl langar fulltrúum í ráðin að skoða hvort og þá hvernig væri hægt að nýta húsnæði Þrykkjunnar eftir fyrirmynd Ungmennahússins Músík og Mótor. Farið verður yfir málið á fundinum.
Enn þá er unnið að kynningu til að vera með fyrir hagsmunaaðila.
5.
Ungmennaráð 2023-2024
Málsnúmer 202306028
82 fundur ungmennaráðs er síðasti fundur ráðsins fyrir sumarfrí og jafnframt síðasti fundur þessa ráðs. Í september tekur við nýtt ungmennaráð. Fulltrúar ráðsins sitja þó í ráðinu þar til nýtt ráð hefur verið skipað.Ef hægt væri að byrja aftur upp á nýtt á þessu ári, hvað hefðum við getað gert betur?
Ungmennaráðið ræddi allskonar hluti sem hafði mátt gera betur. Margir þeirra snéru að skipulagi og forgangsröðun verkefna og að það hafði verið gaman að taka meira þátt. T.a.m. voru eingöngu 6 af 10 fulltrúum ungmennaráðs virkir í Höfn í Hafnarfirði verkefninu.

Þó að um síðasta formlega fund ráðsins sé að ræða fyrir sumarfrí, þá mun ráðið starfa að ungmennaþinginu og humarhátíðinni en þeir fulltrúar sem sitja áfram í ungmennaráði á næsta starfsári eru. Berglind Stefánsdóttir, Stefán Birgir Bjarnason og Alexandra Guðrúnardóttir.

Ráðið þakkar fyrir frábært starfsár.