Ungmennaráð Hornafjarðar
83. fundur
17. september 2023
kl.
16:30
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Stefán Birgir Bjarnason
Alexandra Guðrúnardóttir
varamaður
Sigursteinn Ingvar Traustason
formaður
Amylee Vitoria da Silva Trindade
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Kosning formanns og varaformanns - ungmennaráð
Farið verður yfir hlutverk formanns og varaformannsKosning
Sigursteinn Ingvar Traustason verður formaður ungmennráðs og Alexandra Guðrúnardóttir varaformaður.
2.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Nýlega var hafist handa við að uppfæra jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar og leitar velferðarnefnd nú eftir umsögn og athugasemdum frá öðrum fastanefndum.
Skúli Ingibergur Þórarinsson kynnti jafnréttisáætlunina og fór í grófum dráttum yfir helstu breytingar. Einnig fór hann yfir hverjir bera ábyrgð á því að henni sé fylgt eftir.
Ungmennaráð gerði ekki athugasemdir við áætlunina og þakkar Skúla kærlega fyrir.
Ungmennaráð gerði ekki athugasemdir við áætlunina og þakkar Skúla kærlega fyrir.
3.
Fundargátt sveitarfélagsins - kynning fyrir nefnd
Ungmennaráð mun funda einu sinni í mánuði og ber fulltrúum ungmennaráðs að notast við rafrænar undirskriftir eftir hvern fund. Farið yfir hvernig rafrænar undirskriftir virka og hvernig fulltrúar í ungmennaráði geta ný sér fundargáttina.
Farið var yfir rafrænar undirskriftir og hvernig fundargáttin virkar.
4.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Farið yfir fastanefndir og ráð sem fulltrúar ungmennaráðs eiga rétt á að sitja í.Þessar nefndir eru; umhverfis- og skipulagsnefnd, fræðslu- og frístundanefnd, atvinnu -og menningarmálanefnd, hafnarstjórn og velferðarnefnd.Auk þess þarf a.m.k. þrjá fulltrúa í stýrihóp barnsvæns sveitarfélags og einn fulltrúa í lýðheilsuráð.
Skipaðir voru áheyrnarfulltrúar.
Aðalmaður í umhverfis- og skipulagsnefnd er Stefán Birgir Bjarnason.
Varamaður í umhverfis- og skipulagsnefnd er Sigursteinn Ingvar Traustason
Aðalmaður í atvinnu- og menningarmálanefnd er Amylee Trindade
Birta Ósk Sigbjörsdóttir er áheyrnarfulltrúi í Fræðslu og frístundarnefnd, en hefur óskað eftir því að losna úr því, Alexandra Guðrúnardóttir er varamaður.
Fulltrúar í Barnvænu sveitarfélagi eru Birta Ósk Sigbjörsdóttir, Stefán Birgir Bjarnason og Sigursteinn Ingvar Traustason.
Fulltrúar í aðrar nefndir verða skipaðir á næsta fundi ungmennaráðs en ennþá vantar tvo fulltrúa frá atvinnulífinu í ungmennaráðið. Ungmennaráð ætlar að hafa augun opin og er starfsmanni falið að auglýsa eftir áhugasömum.

5.
Tilnefning í Ungmennaráð Suðurlands
Ungmennaráð Suðurlands var stofnað árið 2017 í kjölfar áhersluverkefnis Sóknaráætlunar á árinu 2017. Í Ungmennaráði Suðurlands situr einn fulltrúi fyrir hvert sveitarfélag á Suðurlandi. Selma Ýr Ívarsdóttir hefur verið fulltrúi Hornafjarðar síðustu tvö árin, en nú er hún ekki lengur í ungmennaráði og því þarf að endurnýja.
Alexandra Guðrúnardóttir tekur að sér að vera fulltrúi í Ungmennaráði Suðurlands.
6.
Ungmennaþing 2023
Þann 8. september síðastliðinn stóð ungmennaráð fyrir Ungmennaþingi í Nýheimum. Markmiðið ungmennaþings sem haldið er á tveggja ára fresti er að fá fram skoðanir ungs fólks á samfélaginu og hvernig það vill sjá samfélagið þróast. Niðurstöður þingsins móta svo línu fyrir ungmennaráð til að vinna eftir næstu misserin. Ungmennaþing sátu allir nemendur úr í 8., 9. og 10. bekk ásamt nemendum úr framhaldskólanum en auk þess var öllu ungu fólki í sveitarfélaginu að 24 ára aldri boðið til þátttöku. Nú er það verkefni ungmennaráðs að vinna úr þessum niðurstöðum og undirbúa kynningu fyrir þátttakendur, fastanefndir og fleiri auk þessa að gera sér vinnuáætlun.
Farið var stuttlega yfir samantekt úr málstofum ungmennaþings og leggur ráðið til að boða til kynningar í hádeginu 29.september á Nýtorgi í Nýheimum.
Starfsmaður lagði fram metnaðarfullt vinnuplan fram að kynningu sem ungmennaráð samþykkti.
Starfsmaður lagði fram metnaðarfullt vinnuplan fram að kynningu sem ungmennaráð samþykkti.
7.
Ungmennaráð 2023-2024
Mál sem ungmennaráð vill fá til umsagnar. Til þess að ungmennaráð sé virkt og hafi aðkomu að málum sem það varðar ætlar það að senda skilaboð til allra fastanefnd um það hvernig mál það vill fá til umsagnar.
Fulltrúar ungmennaráðs hafa mikin áhuga á skipulagsmálum og óska eftir því að taka þátt í slíkum umræðum og fá mál inn á sitt borð til umsagna. Það gildir ekki síst um uppbyggingu á íþróttasvæði og íþróttamannvirkjum. Áheyrnarfulltrúar ungmennaráðs ætla sér að vera virkir í fastanefndum. Flest mál sem lúta beint að börnum og ungmennum eiga einnig erindi inn á borð til ungmennaráðs.