Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

84. fundur
2. október 2023 kl. 16:30 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir varaformaður
Sigursteinn Ingvar Traustason formaður
Amylee Vitoria da Silva Trindade
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson
Smári Óliver Guðjónsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202010120
Hornafjörður vinnur að innleiðingu barnvæns sveitarfélags, verkefni UNICEF sem gætir að réttindum barna í allri ákvörðunartöku. Ungmennaráð gegnir lykil hlutverki í innleiðingarferlinu og er mikilvægt að það sé með í ráðum hvernig staðið er að aðgerðaráætlun sem skila á til UNICEF sem er næsta skref í innleiðingunni.
Farið var yfir kynningarmyndband um barnvænt sveitarfélag sem unnið var af ungmennaráði Akureyrar.
Umræður um tilganginn og markmið með verkefninu „Barnvænt Sveitarfélag“ og farið yfir aðgerðaráætlun sem vinnuhópur stefnir því að skila inn um mánaðarmótin október/nóvember.
Margar að þeim aðgerðum sem unnið er með tengjast ungmennaráði og hvernig hægt er að hafa börn og ungt fólk með í ráðum í stórum ákvörðunartökum innan sveitarfélagsins.
Ungmennaráð mun skila skýrslu til UNICEF næsta vor þar sem farið verður yfir hvernig hefur gegnið með aðgerðaráætlunina.
Ungmennaráð hlakkar til áframhaldandi starfa með verkefnið og mun fylgjast með þeim breytingum sem verða.
2.
Ungmennaráð - Umhverfis og skipulagsmál
Málsnúmer 202309095
Brynja Dögg Ingólfsdóttir kynnti þau skipulagsmál sem eru í ferli hjá sveitarfélaginu.
Brynja Dögg var með veglega kynningu á sínu starfi fyrir ungmennaráð. Hvað hún gerir í vinnunni og hvernig hún vinnur sitt starf.
Rætt var um muninn á helstu hugtökum einnig var farið yfir teikningar af helstu skipulagsmálum sem eru í vinnslu þessa daga. Íþróttamannvirki, B5, nýr miðbær og verslunarmiðstöð voru meðal annars það sem var rætt um.
Ein af aðgerðum barnvæns sveitarfélags er að kynna skipulagsmál sem eru í vinnslu fyrir unga fólksinu á grundvelli þar sem hægt er að eiga samtal og var útfærsla á því rædd við ungmennaráð. Ungmennaráð leggur til að ráðið fái að taka þátt í kynningum með aðstoð samfélagsmiðla áður en farið verður inn í skólana. Þannig er stuðlað að því að ungt fólk sé búið að sjá myndir af fyrirhuguðum framkvæmdum.
Frekari útfærsla yrði í höndum starfsmanna en í góðu samtali við fulltrúa ungmennaráðs.
Ungmennaráð þakkar Brynju fyrir mjög góða kynningu.


3.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Málsnúmer 202209040
Ungmennaráð Hornafjarðar skipar áheyrnarfulltrúa í fastanefndir sveitarfélagsins.Áheyrnarfulltrúi í atvinnu- og menningarmálanefnd er Amyli Trindade og í umhverfis- og skipulagsnefnd er Stefán Birgir Bjarnarson, varamaður þar er Sigursteinn Ingvar Traustason, en hann er einnig áheyrnarfulltrúi í Hafnarstjórn. Ungmennaráð á eftir að skipa fulltrúa í velferðarnefnd og fræðslu- og frístundarnefnd. Einnig vantar ennþá fulltrúa úr atvinnulífinu, auglýsingar hafa engann árangur borið.
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson verður áheyrnarfulltrúi í fræðslu- og frístundarnefnd.
Enn er unnið að því að finna fulltrúa í velferðarnefnd.

Auglýsing um fulltrúa ungmennaráðs úr atvinnulífinu hefur enn ekki borið neinn árangur
Starfsmanni falið vinna áfram að málinu.
4.
Ungmennaþing 2023
Málsnúmer 202304024
Niðurstöður ungmennaþings. Vinnuskipulagið gekk ekki eftir og því var kynningu frestað og óskar verkefnastjóri eftir því að hún fari fram fimmtudaginn 12.10.2023
Farið var yfir hver staðan var á niðurstöðum ungmennaþings og nokkrar leiðir skoðaðar til þess að kynna verkefni.
Ungmennaráði langar til að gera skemmtilegar kynningar í formi videós en sú vinna er ekki hafinn og því velt upp hvort það náist fyrir 12.október, en þá er hugmyndin að kynna niðurstöður ungmennaþings.
Vinnufundur verður með hluta af ungmennaráði næstu daga þar sem lagt verður mat á stöðuna.
5.
Kynningar á fastanefndum
Málsnúmer 202302002
Sigursteinn fór yfir helstu mál í Hafnarstjórn.
6.
Ungmennarða og verkefnin 2023-2024
Málsnúmer 202309088
Erindi frá varaformanni ungmennaráðs um áframhaldandi samstarf við ungmennaráð Hafnarfjarðar.Alexandra Guðrúnardóttir varaformaður kynnti samstarfið.
Ungmennaráð tekur vel í þessa hugmynd og finnst nauðsynlegt að haldið verði áfram að rækta samband milli ungmennaráða. Starfsmaður verður í sambandi við forstöðumann ungmennahúsa í Hafnarfirði um áframhaldið en markmiðið er þó að ungmennaráðin vinni verkefnið sjálf.
7.
Ungmennaráð og UNICEF
Málsnúmer 202309096
Óskað er eftir 3 fulltrúum ungmennaráðs í teymisvinnu með UNICEF vegna fundar sem halda á í Björtuloftum í Hörpu þann 2. nóvember næstkomandi.Efni fundarins eru loftslagsmál og er hugmyndin að fá unga umhverfissinna til þess að vera með 30-40 mínútna erindi ásamt því að ungmennin myndu skipuleggja þá vinnu sem yrði eftir það. Tveir teymisfundir verða í gegnum fjarfundarbúnað vikuna 9.-13. október eða 16.-20. október að taka Teams fundinn með fulltrúum Ungmennaráða BVS.
Sigursteinn Ingvar Traustason, Stefán Birgir Bjarnason, Birta Ósk Sigbjörnsdóttir sitja í stýrihóp um innleiðingu barnvæns sveitarfélags og munu því taka að sér að sitja í þessum vinnuhóp.
8.
Ungmennaráð og Fundartími
Málsnúmer 202309097
Óskað er eftir því að kanna hvort hægt sé að færa fundartíma ungmennaráðs fram um 30-60 mínútur.
Fulltrúar ungmennaráðs sáu enga fyrirstöðu að færa fundartímann fram um 30 mínútur.
Fastir fundir verða því framvegis fyrsta mánudag í mánuði kl. 16:00.
En næsti fundur verður haldinn 13.11.2023 kl 16:00 þar sem starfsdagar eru í skólanum mánudaginn 06.11.2023