Ungmennaráð Hornafjarðar
89. fundur
29. febrúar 2024
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Sigursteinn Ingvar Traustason
Amylee Vitoria da Silva Trindade
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Menningarstefna 2023
Bæjarráð vísar nýrri menningarstefnu til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins. Eyrún Helga Ævarsdóttir fylgir menningarstefnunni eftir.
Ungmennaráð gerir enga athugasemd við stefnuna og tekur vel í hana og þakkar Eyrúnu fyrir góða kynningu.
2.
Skuggakosningar 2024
Ætti ungmennaráð standa fyrir skuggakosningum í tilefni forsetakosninga þann 1.júní 2024?
Það er vilji fyrir skuggakosningum og viðburði í tengslum við þær. Verkefnisstjóra falið að vinna áfram að frekara skipulagi. Þrír fulltrúar ungmennaráðs verða með í ráðum en það eru Jón Dagur, Stefán Birgir og Amylee.
3.
Ungmennaráð Fræðsla og samstarf
Unnið er að fræðsluferð austur í Múlaþings og mögulega til Fjarðabyggðar.Unnið var með dagsetningarnar 18 - 19 apríl, en Múlaþing hefur óskað eftir því að þetta verði 2 og 3 maí.
2. og 3. maí hentar ekki grunnskólahluta ungmennaráðsins vegna Samfestingsins sem fer fram 3. og 4. maí í Laugardalshöll. Því er óskað eftir því að vinna áfram með 18. og 19. apríl. Ef það gengur ekki þá þarf að fresta þessu eða finna annan tíma.
4.
Ungmennaráð og verkefnin 2023-2024
Opin umræða um önnur verkefni.Hvaða hugmyndir hefur ungmennaráð um Humarhátíð?
Ungmennaráð vill vera með í Humarhátíð.
Pop Quiz á fimmtudeginum. Karókí kemur til greina í tjaldinu. Sápubolta á laugardeginum.
Frekari aðkoma er í skoðun.
Pop Quiz á fimmtudeginum. Karókí kemur til greina í tjaldinu. Sápubolta á laugardeginum.
Frekari aðkoma er í skoðun.
5.
Unga fólkið aftur heim
Í tengslum við Hornafjörður náttúrulega á að skoða forsendur fyrir ungmennahúsi á Höfn. Óskað er eftir fulltrúa frá Ungmennaráði í þann hóp.
Ungmennaráð tekur boðinu fagnandi og vill að sjálfsögðu taka þátt í þessu verkefni.
Sigursteinn og Birta munu taka taka við þessum bolta.
Sigursteinn og Birta munu taka taka við þessum bolta.