Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

9. fundur
19. mars 2015 kl. 15:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þorlákur Helgi Pálmason formaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir varaformaður
Ágúst Máni Aðalsteinsson aðalmaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir aðalmaður
Ingvi Þór Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesler Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Formannsskipti Ungmennaráðs
Málsnúmer 201503035
Lagt fram að formaður og varaformaður skipti um hlutverk. Tillagan er samþykkt af öllum meðlimum ungmennaráðs og er því formleg að fundi loknum.
2.
Ungmennaþing
Málsnúmer 201501025
Sett dagsetning fyrir ungmennaþing er 16. mars klukkan 13:00 í Nýheimum. Fyrirkomulag þingsins verður eftirfarand; formaður ungmennaráðs flytur opnunarávarp, Unnsteinn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Landsambands Æskulýðsfélaga ávarpar ungmennin og Jafningjafræðslan tekur svo við með hópefli og aðra leiki. Að því loknu verður skipt í hópa með jöfnu aldursbili og unnið í fimm mismunandi málstofum. Umræðuefnin verða skóla- og fræðslumál, íþrótta- og tómstundamál, umhverfis- og skipulagsmál, velferðarmál og síðast en ekki síst verður Unnsteinn með vinnustofu um lýðræði og kosningaþátttöku ungs fólks. Gert verður hlé eftir málstofur þar sem boðið verður upp á pizzu og gos. Eftir hlé verða niðurstöður dregnar saman og þingi slitið.

Lögð hefur verið fram styrkbeiðni til Aðgerðarhóps Hornafjarðar um lýðheilsu og forvarnir upp á 60 þúsund krónur.

Eftir þingið vinnur ungmennaráð úr niðurstöðum og kemur þeim á framfæri þangað sem við á.