Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

90. fundur
8. apríl 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Sigursteinn Ingvar Traustason
Amylee Vitoria da Silva Trindade
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson
Smári Óliver Guðjónsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Réttindafulltrúar Barnvæns sveitarfélags. Aðgerð 4.
Málsnúmer 202402114
Fyrsti fundur með réttindafulltrúum Barnvæns sveitarfélags var haldinn 1. mars.Fundarefni kynnt fyrir ungmennaráði.
Ungmennaráð þakkar fyrir góða kynningu og stefnir að einhverju mjög flottu þann 20. nóvember á afmælisdegi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
2.
Skuggakosningar 2024
Málsnúmer 202402158
Það er vilji ungmennaráðs að fara í skuggakosningar fyrir forsetakosningar í vor. Á síðasta fundi var skipuð þriggja manna vinnunefnd til að undirbúa þær. Verkefnastjóri kynnir vinnuskipulagið í samráði við nefndina.
Ungmennaráð skipti niður verkum eftir vinnuskipulaginu. Skuggakosningarnar verða vikuna 28. maí - 31. maí. 1. júní mun ungmennaráð svo standa fyrir kosningavöku. Stöðufundur verður eftir 22. apríl.
3.
Ungmennahús 2024
Málsnúmer 202403079
Kynning á hugmyndum um ungmennahús í tengslum við verkefnið Hornafjörður náttúrulega.Þessi kynning fór fyrir bæjarráð á dögunum. Hvað vill ungt fólk sjá í ungmennahúsi? Hver væri heppilegur opnunartími?
Ungmennaráð fagnar því að Hornafjörður náttúrlega sé farið af stað með þessa vinnu og mun að sjálfsögðu taka þátt í verkefninu. Ungmennaráð bendir á að rýmið inn af Þrykkjunni gæti verið kjörið undir starfsemi ungmennahúss ef hægt væri að færa þá starfsemi sem þar er annað. Ráðið bindir miklar vonir við að sjá þetta verða að veruleika næsta haust.