Ungmennaráð Hornafjarðar
91. fundur
6. maí 2024
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Sigursteinn Ingvar Traustason
Amylee Vitoria da Silva Trindade
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Heimahöfn - Ungt fólk og efling byggða
Verkefnið "Heimhöfn " er eins árs þróunarverkefni á vegum Nýheima Þekkingarseturs í samstarfi og með styrk frá Sveitarfélaginu Hornafirði. Meginmarkmið verkefnisins er að efla samkeppnishæfni og aðráttarafl Hornafjarðar sem búsetukost framtíðarinnar. Á fundinum ætlar fulltrúi verkefnisins að kynna það fyrir ungmennaráði og fá hugmyndir frá ráðinu um hvernig best sé að því staðið.
Kynningin á verkefninu Heimahöfn vakti mikinn áhuga fulltrúa í ungmennaráði. Líflegar umræður sköpuðust um hvernig verkefnið gæti náð betur til ungmenna og hvernig megi kynna það betur.
Ungmennaráð þakkar Kristínu Völu kærlega fyrir góðu kynningu.
Ungmennaráð þakkar Kristínu Völu kærlega fyrir góðu kynningu.
2.
Humarhátíð 2024
Humarhátíðarnefnd hefur boðið ungmennaráði að standa fyrir viðburðum á Humarhátíð.Farið yfir hugmyndir og hvernig þær verða unnar.
Fulltrúum ungmennaráð hlakkar mikið til að vera með viðburði á Humarhátíð. Ráðið leggur til að vera með Pup Quiz í tjaldinu á fimmtudagskvöldinu sem endar á karókí. Sápubolta á laugardeginum og ungmennaball um kvöldið.
Ráðið skipti niður á sig verkum og mun halda vinnunni áfram.
Ráðið skipti niður á sig verkum og mun halda vinnunni áfram.
3.
Skuggakosningar 2024
Farið yfir stöðuna á skipulagi skuggakosninga.
Allt á góðri leið. Kosið verður í vikunni fyrir settan kjördag og verður kjörstaður í Þrykkjunni.
Unnið að viðburði laugardaginn 1. júní til að fagna Skuggakosningum.
Unnið að viðburði laugardaginn 1. júní til að fagna Skuggakosningum.
4.
Ungmennahús 2024
Spurningakönnun sem unnið er að með verkefnisstjórum Hornafjarðar náttúrlega um uppbyggingu á ungmennahúsi lögð fram til kynningar.
Fulltrúar í ungmennaráði þakka fyrir góða vinnu og hlakka til að fá að svara könnuninni.