Ungmennaráð Hornafjarðar
92. fundur
4. júní 2024
kl.
16:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Stefán Birgir Bjarnason
Sigursteinn Ingvar Traustason
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Skuggakosningar 2024
Farið yfir niðurstöður Skuggakosninga og hvernig gekk að koma þeim á.
Gaman og fróðlegt var að takast á við þetta verkefni þó vissulega hefði mátt peppa það betur og auglýsa meira. Sérstaklega hefði þurft að ná betur til árganga 2006 og 2007. Alls voru 113 á kjörskrá. 57 greiddu atkvæði eða 50%.
Jón Gnarr var sigurvegari Skuggakosninganna. Hann fékk 27 atkvæði eða 47%.
Atkvæði annarra skiptust þannig
Ásdís Rán Gunnarsdóttir fimm atkvæði.
Baldur Þórhallsson fimm atkvæði.
Halla Hrund Logadóttir fimm atkvæði.
Halla Tómasdóttir fimm atkvæði.
Katrín Jakobsdóttir fimm atkvæði.
Arnar Þórisson eitt atkvæði.
Ástþór Magnússon Wium eitt atkvæði.
Eiríkur Ingi Jóhannsson eitt atkvæði.
Helga Þórisdóttir eitt atkvæði.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir eitt atkvæði.
Viktor Traustason ekkert atkvæði.
Niðurstöður kosninganna voru tilkynntar á Skuggaballi sem haldið var á Hafinu að kvöldi kosningadags. Þar spilaði tónlistarmaðurinn Izleifur og mættu 46 á ballið.

2.
Humarhátíð 2024
Skipulag á aðkomu ungmennaráðs að Humarhátíð.
Alltaf stemning fyrir Humarhátíð og mun ungmennaráð vera með pubquzið á fimmtudeginum.
Ungmennaráð er hugsi yfir öðrum viðburðum og vill frekar leggja meiri metnað í að láta pubquzið og sápuboltann ganga upp en minna spennt fyrir ungmennaballi.
Ungmennaráð er hugsi yfir öðrum viðburðum og vill frekar leggja meiri metnað í að láta pubquzið og sápuboltann ganga upp en minna spennt fyrir ungmennaballi.
3.
Höfn í Hafnarfirði
Fulltrúar úr ungmennaráði Hafnafjarðar höfðu samband við fulltrúa úr ungmennaráði Hornafjarðar og óskuðu eftir stuðningi frá þeim við að halda Hamrinum, ungmennahúsi í Hafnarfirði opnum.
Ungmennaráð Hornafjarðar hefur verið að hvetja til opnunar ungmennahúss á Höfn og haft að leiðarljósi mikilvægi þess að veita ungmennum samanstað til að efla félagastarf sitt og áhugamál. Í ljósi þess veldur það ungmennaráði undrun að verið sé að loka Hamrinum í Hafnarfirði enda hefur ungmennaráð Hornafjarðar kynnst starfseminni þar.
Ungmennaráð Hornafjarðar vill styðja vini sína í Hafnarfirði og vonast til að málefni ungmennahúsa í Hafnarfirði leysist farsællega og tekið verði tillit til athugasemda fulltrúa ungmennaráðs Hafnarfjarðar.

4.
Ungmennaráð og verkefnin 2023-2024
Eftir sumarfrí verða talsverðar mannabreytingar í ungmennaráði. Margir eru að breyta um skólastig og aðrir eru að fara annað. Það þarf því að halda kosningu í FAS og í Grunnskóla Hornafjarðar og verður það gert strax næsta haust.Veturinn og samstarfið rætt.
Ungmennaráð er í heildina sátt við veturinn og þakkar fyrir gott starf.
Eftir á séð hefðu þau þó viljað gera suma hluti af meiri metnaði og jafnvel vera virkari á samfélagsmiðlum sem og á öðrum stöðum.
Þá hefði ungmennaráð viljað fá að taka meiri þátt i umræðu um íþróttir og íþróttastarf í sveitarfélaginu.