Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

93. fundur
9. september 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Adam Bjarni Jónsson
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Isold Andrea Andrésdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð 2024-2025
Málsnúmer 202408106
Farið yfir störf og skyldur ungmennaráðs.
Að lokinni kynningu á störfum ungmennaráðs skiptu fundarmenn með sér verkum.
Var Dagmar Lilja Óskarsdóttir skipaður formaður og Selma Ýr Ívarsdóttir varaformaður.
2.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Málsnúmer 202209040
Ungmennaráð skipar fulltrúa í fastanefndir.
Áheyrnarfulltrúar voru skipaðir sem hér segir:
Í umhverfis og skipulagsnefnd; Stefán Birgir Bjarnason og Adam Bjarni Jónsson varamaður.
Í fræðslu- og frístundarnefnd; Smári Óliver Guðjónsson og Berglind Stefánsdóttir varamaður.
Í atvinnu- og menningarmálanefnd; Selma Ýr Ívarsdóttir.
Í velferðarnefnd; Dagmar Lilja Óskarsdóttir og Ísold Andrea Andrésdóttir til vara.

Fulltrúar í stýrihóp um Barnvænt sveitarfélag verða Sindri Sigurjón Einarsson, Smári Óliver Guðjónsson og Selma Ýr Ívarsdóttir
Í lýðheilsuráð var skipuð Dagmar Lilja Óskarsdóttir.


3.
Ungmennaráð - fundartími
Málsnúmer 202309097
Síðasta vetur fundaði ungmennaráð fyrsta mánudag í mánuði kl. 16:30.
Ungmennaráð sammæltist um að halda þeim fundartíma og mun því funda fyrsta mánudag hvers mánaðar kl 16:30.
4.
Fræðsludagur ungmennaráðs
Málsnúmer 202408047
Fræðsludagur ungmennaráðs verður haldinn föstudaginn 13. september nk.
Verkefnisstjóri kynnti dagskrá fræðsludagsins fyrir ungmennaráði sem líst vel á og hlakkar til að taka þátt. Auk ungmennaráðs er nemendaráðum FAS og GH boðin þátttaka.
5.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Frá því í febrúar hefur verið starfræktur stýrihópur á vegum sveitarfélagsins um byggingu nýs íþróttahúss á Höfn. Hlutverk stýrihópsins er að leiða hönnun og byggingu hússins, leita hagkvæmustu og bestu lausna og eiga víðtækt samráð við hagsmunaaðila. Stýrihópurinn hefur fengið til liðs við sig ráðgjafa og arkitekt og megin viðfangsefnið á þessum tímapunkti er að ákveða staðsetningu á húsinu. Horft er til tveggja staðsetninga, annars vegar viðbyggingar við gamla húsið með millibyggingu yfir í sundlaugina og hins vegar stakstæðs hús á "gamla malarvellinum".
Eyrún Fríða formaður stýrihópsins kom og kynnti starf stýrihópsins. Farið var yfir þrjár teikningar sem nú liggja á borðinu en með þeim er verið að vinna sig að því að taka ákvörðun um staðsetningu hússins. Allar þrjár teikningarnar eru mjög áhugaverðar og ætlar ráðið að koma skoðunum sínum til stýrihópsins á næstu dögum. Verkefnatjóri mun boða hluta af ungmennaráði á vinnufund þar sem farið verður yfir teikningarnar og skoðunum ungs fólks komið á framfæri.
Eyrúnu var þakkað fyrir góða kynningu.