Ungmennaráð Hornafjarðar
94. fundur
7. október 2024
kl.
16:30
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Adam Bjarni Jónsson
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Emilía Alís Karlsdóttir
Isold Andrea Andrésdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð 2024-2025
Fulltrúar Ungmennaráðs fara yfir hvaða verkefni hafa verið í gangi hjá ungmennaráði síðan á síðasta fundi
Þrír fulltrúar ungmennaráðs fóru á ungmennaráðstefnu UMFÍ "Ungt fólk og lýðheilsa" sem fram fór á Reykjum í Hrútafirði helgina 20. - 22. september. Þar voru um 100 ungmenni alls staðar að af landinu og var ráðstefnan einstakleg vel heppnuð. Þar var m.a. rætt um lýðheilsu í þremur málstofum. Málstofa 1. Líkamleg heilsa, en um hana sá Logi Geirsson. Málstofa 2. Andleg heilsa og var Aldís Arna Tryggvadóttir með hana og síðast en ekki síst var Sabín Steinunn Halldórsdóttir með málstofu um félagslega heilsu. Einnig mætti Anton Sveinn Mackee, sundmaður með sína sögu. Ráðstefnan endaði svo á kaffihúsaspjalli með ráðherrum, þingmönnum og fleiri aðilum m.a. Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barnamálaráðherra, Loga Má Einarssyni þingmanni, Kristófer Þorgrímssyni spretthlaupari, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ ásamt mörgum öðrum.
Ungmennin sem fóru á Reyki voru einstaklega ánægð með ferðina og fannst þetta ver einstök upplifun.
Ungmennin sem fóru á Reyki voru einstaklega ánægð með ferðina og fannst þetta ver einstök upplifun.
2.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Á 93. fundi ungmennaráðs voru fulltrúar skipaðir í fastanefndir. En vantar þó fulltrúa í Hafnarstjórn. Einnig þarf að skipa varamenn í aðrar nefndir. Umræða um fundi fastanefnda og hvað er efst í huga fulltrúa ungmennaráðs.
Fulltrúar ungmennaráðs tóku hring þar sem þau ræddu hvaða málefni hefðu verið efst á baugi á fundum fastanefnda. Umræður urðu líflegar um skipulagsmál og fyrirhuguð íþróttamannvirki.
Ráðið kallar eftir meiri umræðu um umhverfis og skipulagsmál á næsta fundi Ungmennaráðs.
Ísold Andrea Andrésdóttir verður aðalmaður hafnarstjórn og Sindri varamaður.
Emilía Alis Sumarrós verður varamaður í atvinnu og menningarmálanefnd.

3.
Þrykkjan - Opnanir - Ungmennahús aldur
Forstöðumaður Þrykkjunnar mætir á fundinn og segir frá tilraun með að hafa Þrykkjna opna á fimmtudagskvöldum í vetur fyrir 16 - 20 ára ungmenni. Þessi tilraun er gerð eftir miklar umræður um ungmennahús.
Ungmennaráð fagnar þessari tilraun og hvetur forstöðumann Þrykkjunnar að slaka ekki á í að auglýsa þessar opnanir og að mynda gott samstarf við nemendafélag FAS.
Ungmennaráð ætlar einnig að vera duglegt að deila viðburðum fyrir ungt fólk á miðlum eins og TikTok og Instagram til að peppa þannig félagslífið í sveitarfélaginu.
Ungmennaráð ætlar einnig að vera duglegt að deila viðburðum fyrir ungt fólk á miðlum eins og TikTok og Instagram til að peppa þannig félagslífið í sveitarfélaginu.
4.
Fræðsludagur ungmennaráðs
13.septamber síðastliðinn var fræðsludagur Ungmennaráðs.
Á fræðsludeginum var ýmislegt gert og var hann ótrúlega vel heppnaður.
Ungmennráð vill leggja áherslu á að þetta árið verði sýnilegur framkvæmdir á leikvöllum og unnið verði með aðrar hugmyndir en rólur og rennibrautir til að mynda klifurveggi og heilsueflandi hluti.
Einnig vilja þau að grillsvæði sem áður hefur verið rætt fyrir neðan Hrossó verði að veruleika og að þar verði bekkir, skjólveggir, jafnvel kofi svo þetta sé næs staður að hanga á og hægt að setja jafnvel keppnsleiki við svæðið.
Ungmennaráð vill einnig að gangstéttinni við Silfurbraut verði löguð og merki ungmennaráðs sett við gangstéttanna að því loknu.

5.
Aðgerðaráætlun 2023 Barnvænt sveitarfélag
Aðgerðaráætlun Barnvæns sveitarfélags var samþykk af Unicef síðastliðinn vetur.Nú er komið að því að sveitarfélagið fari í úttekt og þarf bæði að skila inn skýrslu og mati ungmennaráðs á stöðunni.Kynning á vinnuskipulagi sem og hugmyndavinna. Hvað vill ungmennaráð gera?
Ungmennaráð skoðar þann möguleika á að gera kynningarmyndband á aðgerðaráætluninni sem og stöðunni á henni. Ungmennaráð telur að myndbandið þurfi að vera vel unnið og felur starfsmanni að kanna hvort hægt sé að fá fagaðila til að taka það upp og vinna það þó að þau kæmu að handritsgerð og kæmu fram í því.
Myndbandið á einnig að vera fræðslu efni um Barnasáttmálann og hvernig sveitarfélagið stendur gagnvart honum. Stefnt á að myndbandið verði tilbúið 20. nóvember á 35 ára afmælisdegi Barnasáttmálans.
Myndbandið á einnig að vera fræðslu efni um Barnasáttmálann og hvernig sveitarfélagið stendur gagnvart honum. Stefnt á að myndbandið verði tilbúið 20. nóvember á 35 ára afmælisdegi Barnasáttmálans.
6.
20.nóvember.Fræðsludagur um barnasáttmálann
Samkvæmt aðgerðaráætlun sveitarfélagsins í innleiðingarferli barnvæns sveitarfélags skal 20. nóvember vera fræðsludagur um Barnasáttmálann. Síðasta vetur voru skipaðir réttindafulltrúar sem hafa lagt fyrirspurn fyrir ungmennaráð um hvernig sé best að halda slíkan fræðsludag svo hann nái til sem flestra.
Ungmennaráð leggur til að ef næst að gera myndbandið þá verði það frumsýnt þennan dag í öllum stofnunum sveitarfélagsins. Myndbandið verður í senn mat á stöðunni í sveitarfélaginu en um leið fræðsluefni. Mikilvægt er að gera sem mest úr þessu t.a.m. mætti biðja fólk um að svara spurningum um Barnasáttmálann að lokinni sýningu og út á hvað verkefnið Barnvænt sveitarfélag gengur.