Velferðarnefnd
19. fundur
15. desember 2022
kl.
16:15
-
18:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir
varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Gunnar Stígur Reynisson
aðalmaður
Þórdís Þórsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir
sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 8
2.
Öldungaráð - 10
3.
Samningur um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni
Samkvæmt breytingum á barnaverndarlögum nr. 80/2002 verða barnaverndarnefndir skipaðar kjörnum fulltrúum lagðar niður og í stað þeirra verða umdæmisráð skipuð. Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar nr. 300, þann 14. september sl. að Sveitarfélagið Hornafjörður verði aðili að sameiginlegu umdæmisráði barnaverndar á landsbyggðinni sem tekur til starfa nú um áramót. Bæjarstjóra var falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
4.
Barnaverndarlög
Með nýrri skipan barnaverndarþjónustu verða sett á lagginrar umdæmi barnaverndarþjónustu. Í umdæmi hverrar barnaverndarþjónustu skulu vera í það minnsta 6.000 íbúar. Sveitarfélög hafa samvinnu um barnaverndarþjónustu í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Heimilt er að víkja frá skilyrði um lágmarksíbúafjölda, t.d. vegna landfræðilegra ástæðna, ef næg fagþekking er til staðar innan barnaverndarþjónustu og ef fyrir liggur samningur um umdæmisráð barnaverndar. Barnaverndarþjónusta skal þá í það minnsta hafa yfir að ráða sérhæfðu starfsfólki í tveimur stöðugildum og hafa aðgang að félagsráðgjafa, sálfræðingi, lögfræðingi með þriggja ára starfsreynslu í bandavernd og einum starfsmanni með annars konar uppeldismenntun. Ráðherra staðfestir samninga um samvinnu sveitarfélaga og veitir undanþágur vegna lágmarksíbúafjölda. Sviðsstjóri velferðarsviðs hefur sótt um undanþágu frá áðurnefndum skilyrðum vegna fjölda íbúa og aðgengi að sálfræðingi og lögfræðingi.Sviðsstjóri óskar eftir að fá heimild til að hefja viðræður við sviðsstjóra velferðarmála í Fjarðarbyggð um samstarf vegna barnaverndarþjónustu.
Velferðarnefnd samþykkir að veita sviðsstjóra velferðarsviðs umbeðna heimild til viðræðna við sviðsstjóra velferðarmála í Fjarðarbyggð um samstarf vegna barnaverndarþjónustu. Velferðarnefnd vísar málinu áfram til bæjarráðs.
5.
Kynning - Sameiginlegt farsældarráð á Suðurlandi
Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar 8. desember sl. var kynning á sameiginlegu farsældarráði á Suðurlandi sem ekki hefur tekist að koma á laggirnar ennþá. Var bæjarstjóra og sviðsstjóra velferðarsviðs falið að vinna málinu farveg með þátttöku sveitarfélaga á Suðurlandi.
Lagt fram til kynningar.
6.
Akstursþjónusta bílaleiga
Stuðnings-og virkniþjónusta hefur haft til umráða tvær bifreiðar Caddy (FMS80) og Nissan Leaf (ATG80) sem hafa verið settar á sölu hjá bílasölunni Bílfang og annar þeirra þegar seldur. Ákveðið var að gera rekstarsamning við Höldur ehf. vegna tveggja bifreiða í stað þessa sem eru til sölu. Ástæða þessara ákvarðana er að kostnaður vegna reksturs bifreiðanna hefur aukist umtalsvert vegna aukins viðhaldskostnaðar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Dagdvöl aldraðra
Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar 24. nóvember sl. var sviðsstjóra velferðarsviðs falið að skrifa undir umboð til að veita Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og Sambandi íslenskra sveitarfélaga til samningagerðar um dagdvöl aldraðra fyrir hönd sveitarfélagsins. Erindi barst frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þar sem óskað er eftir svari frá sveitarfélögum um það hvort vilji sé til að veita SFV og sambandinu umboð til samningagerðar um dagdvöl aldraðra við Sjúkratryggingar Íslands fyrir hönd sveitarfélagsins. Umboðið nær til þess að koma fram fyrir hönd sveitarfélagsins við samningsgerðina, öll samskipti ásamt upplýsinga og gagnaöflunar í tengslum við samningaviðræður, semja um fyrirkomulag og endurgjald fyrir þjónustuna, ganga frá skjölum og samningi, undirritun þeirra, þ.m.t. samninga og öll önnur nauðsynleg skjöl. Gert er ráð fyrir að samninganefndin muni gera einn heildstæðan rammasamning fyrir þjónustu í öllum dagdvölum sem nefndin fær umboð til, en hugsanlegt er að formið verði með öðrum hætti og samningarnir verði fleiri en einn.
Lagt fram til kynningar.