Fara í efni

Velferðarnefnd

24. fundur
11. maí 2023 kl. 16:15 - 17:30
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson Sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Samningur um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni
Málsnúmer 202209039
Viðauki við samning um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni vegna skipunar Árneshrepps í umdæmisráð Landsbyggða með ákvörðun mennta - og barnamálaráðuneytisins 14.4.2023.
Lagt fram til kynningar.
2.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202010120
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir kemur á fundinn og gerir grein fyrir stöðu innleiðingar á verkefninu Barnvænt sveitarfélag
Sigrún Bessý kom og fór yfir stöðu innleiðingar á verkefninu Barnvænt samfélag. Góðar umræður sköpuðust og áhersla lögð á mikilvægi verkefnisins og að niðustöður þess skili sér til barna í sveitarfélaginu.

Meðfylgjandi er hlekkur á fræðsluefni tengt Barnvænu samfélagi og hvetur nefndin íbúa og aðra áhugasama til að kynna sér það: https://unicef-akademian.teachable.com/courses/