Velferðarnefnd
25. fundur
8. júní 2023
kl.
16:15
-
17:30
Miðgarður
Nefndarmenn
Sveinbjörg Jónsdóttir
varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Gunnar Stígur Reynisson
aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir
aðalmaður
Ingólfur Guðni Einarsson
1. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Sviðstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Öldungaráð - 12
Fundargerð 12. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar.
2.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Lögð fram drög að jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir kjörtímabilið 2022-2026
Drög að jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2022-2026 lögð fram til kynningar. Velferðarnefnd vísar Jafnréttisáætlun áfram til kynningar í öðrum fastanenfndum sveitarfélagsins.
3.
Ársskýrsla velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Ársskýrsla velferðarsviðs 2022 lögð fram til kynningar
Ársskýrsla velferðarsviðs 2022 lögð fram til kynningar. Velferðarnefnd vísar henni áfram til umfjöllunar í bæjarráði.
4.
Félagslegt leiguhúsnæði 2023
Farið yfir stöðu mála varðandi félagslegt leiguhúsnæði,
Minnisblað um stöðu á félagslegu leiguhúsnæði lagt fram til kynningar. Velferðarnefnd telur mikilvægt að farið sé í þarfagreiningu á húsnæðisþörf fatlaðs fólks í sveitarfélaginu.
5.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Farið yfir stöðuna á samningi um samræmda móttöku flóttafólks
Minnisblað um samræmda móttöku flóttafólks lagt fram til kynningar.
6.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Kristborg Þráinsdóttir hjá Alta vekur athygli velferðarnefndar, fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar, á því að bæjarstjórn hefur hafið endurskoðun á aðalskiplagi og verklýsing fyrir endurskoðunina hefur verið birt á skipulagsgátt Skipulagsstofnunarinnra.
Velferðarnefnd fagnar því að vinna við endurskoðun aðalskipulags sé komin af stað. Nefndin hvetur alla íbúa til að láta sig málið varða og taka þátt í vinnunni. Þá leggur nefndin áherslu á að horft verði til ólíkra hópa og ólíkra þarfa við vinnu þessa.