Velferðarnefnd
26. fundur
11. september 2023
kl.
16:15
-
17:15
Miðgarður
Nefndarmenn
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir
varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Gunnar Stígur Reynisson
aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnarðarmálabók
2.
Fjárhagsaðstoð
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Fjárhagsaðstoð
Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Sveitarfélagið Hornafjörður skrifaði undir samning um samræmda móttöku flóttafólks þann 13. janúar 2023 og rennur hann út í upphafi næsta árs. skv. 13. gr samningsins skal liggja fyrir ákvörðun um hvort að samið verði um framhald þjónustunnar.
Nefndin leggur til að samningurinn verði framlengdur óbreyttur.
5.
Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta árið 2024
Beiðni frá Stígamótum lögð fram til kynningar. Samningur var gerður við samtökin til þriggja ára og er síðasta greiðsla hans áætluð nú 2023. Starfsmanni falið að hefja samtal um endurnýjun styrktarsamnings við samtökin frá árinu 2024 til þriggja ára.
6.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Jafnréttisáætlun 2022-2026 lögð fram til kynningar. Farið yfir athugasemdir sem fram hafa komið frá fræðslu- og frístundanefnd og fjölmenningarráði og næstu skref áður en áætlunin er tilbúin til afgreiðslu velferðarnefndar.
Farið yfir vinnslu á jafnréttisáætlun, hefur verið lögð fyrir fjölmenningarráð og fræðslu- frístundanefnd. Minniháttar athugasemdir bárust og verður tekið tillit til þeirra. Fyrir liggur að leggja áætlunina fyrir aðrar fastanefndir og hún verði tilbúin til afgreiðslu á næsta fundi nefndarinnar. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
7.
Sala á eignum sveitarfélagsins
Lagt fram til kynningar. Farið yfir ákvörðun bæjarráðs að hefja óformlegar viðræður við Leigufélagið Bríet um mögulega yfirtöku eigna og/eða uppbyggingu leiguíbúða á svæðinu.
Málið lagt fram til kynningar.
8.
Velferðarnefnd undirbúningur fyrir fundi nefndar
Umræða um breytingu fundartíma velferðarnefndar til að falla betur að nýju skipulagi bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Ákveðið að breyta fundartíma velferðarnefndar, áður var fundað annan fimmtudag í mánuði. Ákveðið var að nýr fundartími yrði fyrsti mánudagur í hverjum mánuði.