Velferðarnefnd
28. fundur
9. nóvember 2023
kl.
16:15
-
17:30
Miðgarður
Nefndarmenn
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir
varaformaður
Gunnar Stígur Reynisson
aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir
aðalmaður
Ingólfur Guðni Einarsson
1. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Sviðstjóri velferðarsvið
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 13
Fundargerð 13. fundar fjölmenningarráðs lögð fram til kynningar
Fundargerð 13. fundar fjölmenningarráðs lögð fram til kynningar.
2.
Styrktarbeiðni vegna reksturs Aflsins 2023
Vegna aukinnar aðsóknar í þjónustu Aflsins, samtaka fyrir þolendur ofbeldis, óska samtökin eftir því við sveitarfélag Hornafjarðar að veita samtökunum styrk.
Styrkbeiðni frá Aflinu tekin til umfjöllunar. Beiðni hafnað.
3.
Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók
4.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Lagt fram til kynningar minnisblað starfsmanns um nýtt samstarfsverkefni, Landnemann, sem velferðarsvið og Fræðslunet suðurlands koma að og snýr að aðgengi íbúa af erlendum uppruna að samfélagsfræðslu.
Verkefnið Landneminn sem er samstarfsverkefni velferðarsviðs og Fræðslunets suðurlands lagt fram til kynningar. Nefndin fagnar verkefninu og hvetur öll til að kynna sér verkefnið.
5.
Gjaldskrár 2024
Gjaldskrá velferðarsviðs fyrir árið 2024 lögð fyrir
Gjaldskrá velferðarsviðs lögð fram til umræðu. Málinu vísað áfram til bæjarráðs.
6.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks
Erindisbréf fyrir notendaráð um málefni fatlaðs fólks lagt fram til kynningar.
Erindisbréf fyrir notendaráð um málefni fatlaðs fólks lagt fram. Vísað áfram til bæjarráðs.
7.
Samningur um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni
Minniháttarbreytingar á samning um umdæmisráð barnaverndar lagðar fram til samþykktar
Breytingartillaga á samning um umdæmisráð barnaverndar lögð fram til samþykktar. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við breytingar á samningnum.