Fara í efni

Velferðarnefnd

3. fundur
8. apríl 2021 kl. 16:15 - 17:30
Teams Meating
Nefndarmenn
Gunnhildur Imsland formaður
Gunnar Stígur Reynisson varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir sviðstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Öldungaráð - 7
Málsnúmer 2102009F
Fundargerð Öldungarráðs lögð fram til staðfestingar.
Fundargerð kynnt og samþykkt.
2.
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 202012054
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði lagðar fram til samþykktar.
Reglur samþykktar og vísað til bæjarráðs.
3.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning - uppfærsla
Málsnúmer 202012046
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning - uppfærsla lagt fram til samþykktar.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning - uppfærsla samþykktar og vísað til bæjarráðs.
4.
Drög að erindisbréfi fjölmenningaráðs
Málsnúmer 202104016
Drög að erindisbréfi lagt fram til samþykktar.
Drög að erindisbréfi samþykkt með athugasemdum og starfsmönnum falið að ljúka við það. Nefndin leggur til að fundir ráðsins séu annan hvern mánuð og oftar ef þörf krefur. Málinu vísað til bæjarráðs.
5.
Stuðningsfjölskylda - Úttekt
Málsnúmer 202102015
Niðurstöður úttektar á heimili sem óskar eftir að gerast stuðningsfjölskylda fyrir félagsþjónustu kynntar og lagðar fram til samþykkis um að veita fjölskyldunni leyfi til að vera stuðningsfjölskylda.
Fært í trúnaðarbók.
6.
Drög að reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Málsnúmer 202104012
Drög að reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks lagðar fram til kynningar og umræðu.
Málinu vísað til starfsmanna til frekari vinnu m.t.t. kostnaðaráætlunar og þarfagreiningar.
7.
Gjaldskrá útseldur matur frá Skjólgarði 2020
Málsnúmer 201909057
Lagt fram til samþykktar og staðfestingar á að gjaldskráin fylgi vísitölutryggingu ár hvert.
Gjaldskráin samþykkt og lagt til að hún fylgi vísitölutryggingu ár hvert. Málinu vísað til bæjarráðs.
8.
Drög að reglum um akstursþjónustu aldraðra
Málsnúmer 202104011
Drög að reglum um akstursþjónustu aldraðra lagðar fram til kynningar og umræðu.
Málinu vísað til starfsmanna til frekari vinnu m.t.t. kostnaðaráætlunar og þarfagreiningar.