Fara í efni

Velferðarnefnd

36. fundur
14. október 2024 kl. 16:15 - 18:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ragnheiður Rafnsdóttir formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Dagmar Lilja Óskarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Guðjón Örn Magnússon 1. varamaður
Tinna Rut Sigurðardóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 19
Málsnúmer 2409020F
Fundargerð 19. fundar fjölmenningarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem fram fór 9. október s.l. lögð fram til kynningar
Anna Birna fór yfir fundargerð 19. fundar fjölmenningarráðs.

Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fundargerð og þakkar Önnu Birnu kærlega fyrir góða kynningu.
2.
Styrkur úr styrktarsjóði Geðheilbrigðis
Málsnúmer 202401079
Þann 18. október 2023 veitti Styrktarsjóður geðheilbrigðis Sveitarfélaginu Hornafirði 300.000 kr. styrk til að vinna að verkefninu "Gott bakland". Gott bakland er námskeið og eftirfylgni fyrir aðstandendur einstaklinga með geðgreiningar. Markmiðið er að styrkja aðstandendur í hlutverki sínu sem hornsteinn í bata einstaklings með geðrænar áskoranir, fræða þá um birtingarmyndir ólíkra geðgreininga og aðstoða þá við að finna viðeigandi bjargráð. Velferðarsvið hefur fengið Jón Karl Stefánsson til liðs við verkefnið og mun hann koma að uppbyggingu námskeiðsefnis. Jón Karl er með BA og MA gráðu í sálfræði frá University of Tromsø og vinnur nú að doktorsrannsókn sinni í félagsfræði við Háskóla Íslands. Drög að verkefnalýsingu fyrir verkefnið "Gott Bakland" eru lögð fram til kynningar.
Jón Karl kynnir fyrir nefndinni verkefnalýsingu af verkefninu Gott Bakland. Velferðarnefnd lýsir yfir ánægju með þetta mikilvæga framtak og hlakkar til að fylgjast með framgangi verkefnisins.

Velferðarnefnd þakkar Jóni Karli kærlega fyrir kynninguna.
3.
Öldungaráð - 15
Málsnúmer 2409015F
Fundargerð 15. fundar öldungaráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem fram fór 25. september s.l. lögð fram til kynningar.
Skúli Ingibergur fór yfir fundargerð 15. fundar öldungaráðs.

Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við fundargerð öldungaráðs.
4.
Starfsemi velferðarsviðs 2025
Málsnúmer 202410030
Drög að römmum fyrir fjárhagsáætlun 2025 á Velferaðarsviði Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagðir fram til kynningar
Farið yfir drög að römmum velferðarsviðs fyrir fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025.
5.
Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning
Málsnúmer 202407009
Velferðarsviði barst ósk frá íbúa um að velferðarnefnd tæki til umfjöllunar tillögu að breytingu á 11. gr. reglna um sérstakan húsnæðisstuðning. Breytingartillagan fellst í því að heimild til sérsaks húsnæðisstuðnings verði útvíkkuð með þeim hætti að hún nái einnig til nemenda 15-17 ára sem sækja nám fjarri heimabyggð og leiga á almennum leigumarkaði.
Velferðarnefnd leggur til að ósk um breytingu á 11. gr. reglna um sérstakan húsnæðisstuðining verði hafnað. Nefndin vísar málinu áfram til umfjöllunar í bæjarráði og felur starfsmanni að fylgja því eftir í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu
Málsnúmer 202403019
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála framkvæmdi frumkvæðisathugun á reglum stoð- og stuðningsþjónustu sveitarfélaga í upphafi árs. Niðurstöður liggja nú fyrir og hafa verið sendar á sveitarfélögin með ábendingum og tilmælum til úrbóta. Niðurstöðurnar fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð eru hér með lagðar fram ásamt úrbótaáætlun og tímalínu.
Niðurstöður fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð úr frumkvæðisathugun GEV á reglum stoð- og stuðningsþjónustu sveitarfélaga lagðar fram til kynningar ásamt úrbótaáætlun.

Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við úrbótaáætlun og vísar málinu til umfjöllunar í notendaráði fatlaðs fólks.
7.
Ferðaþjónusta fatlaðra
Málsnúmer 202409085
Drög að endurnýjun þjónustusamnings milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Blindrafélagsins, samtök blindra og sjónskretra á Íslandi, lögð fram til kynningar. Samningurinn kveður á um að Blindrafélagið taki að sér að reka asktursþjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins sem eru greindir lögblindir af Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur vegna fötlunar sinnar. Þjónustusvæði samningsins er Reykjavik og nágrenni og er þjónustan í formi leigubílaþjónustu. Samningurinn byggir á 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, 20. gr. samnings Sameinuðu þjóðana um réttindi fatlaðs fólks, leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um ferðaþjónustu við fatlað fólk og reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um aksturþjónustu fatlaðs fólks.
Drög að samningi milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Blindrafélagsins um aksturþjónustu kynnt.

Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við drögin og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
8.
Samningur um samstarf á sviði endurhæfingar
Málsnúmer 202409098
Þann 15. febrúar 2024 var undirrituð yfirlýsing um samstarf þjónustukerfa á sviði endurhæfingar. Markmið yfirlýsingarinnar er að bæta lífskjör og lífsgæði fólks sem þarf á endurhæfingarþjónustu að halda til að bæta afkomu sína og möguleika til virkni, menntunar og atvinnuþátttöku á eigin forsendum í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar frá 2021. Með vísan í viljayfirlýsinguna leggur Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið fram drög að samning milli þjónustukerfanna og óskar eftir því að félagsþjónustur sveitarfélaga taki þau til yfirferðar. Óskað er eftir því að ábendingum og athugasemdum um efni dragana verði skilað inn fyrir 15. október. Þá er einnig óskað eftir því að stjórnanda félagsþjónustu verði veitt umboð til undirritunar samningsins sem fram 30. október n.k. í tengslum við haustfund og afmælisviðburð Samtaka stjórnenda í velferðarþjonustu í Reykjanesbæ.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við efni draganna og leggur til að sviðsstjóra velferðarsviðs verði veitt umboð til undirritunar á samningnum.

Nefndin vísar málinu áfram til umfjöllunar í bæjarráði.
9.
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á 44.gr laga um útlendinga nr 80/2016.
Málsnúmer 202410018
Óskað er eftir umsögnum vegna draga að frumvarpi til laga um breytingu á 44. gr. laga um útlendingamál nr. 80/2016.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við drög að frumvarpi til laga um breytingu á 44. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
10.
Umsögn um drög að reglugerð um framlög jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk
Málsnúmer 202410023
Óskað var eftir umsögn vegna draga að reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk. Frestur til að skila inn umsögnum var til 9. október og því var ekki unnt að leggja málið fyrir velferðarnefnd. Umsögn var skilað inn f.h. sveitarfélagsins og var hún lögð fyrir bæjarráð og samþykkt þar 8.9.2024. Hún er því lögð fram á fundi velferðarnefndar til kynningar.
Umsögn lögð fram til kynningar.
11.
Kostnaðar- og ábyrgðarskiptin ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk
Málsnúmer 202402002
Starfshópur á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis hefur nú skilað af sér áfangaskýrslu II um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga í málefnum fatlaðs fólks. Skýrslan er lögð fyrir velferðarnefnd til kynningar.
Velferðarnefnd þakkar starfshópnum fyrir vel unnin störf við gerð áfangskýrslu I og II um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk.

Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar leggur sérstaka áherslu á, og hvetur þá aðila sem að málinu koma til að klára þá vinnu sem nauðsynleg er til að komast að niðurstöðu í málefnum er varðar börn og ungmenni með fjölþættan vanda sem allra fyrst, og að kostnaður vegna þriðja stigs þjónustu verði í kjölfarið alfarið á herðum ríkisins.