Fara í efni

Velferðarnefnd

4. fundur
20. maí 2021 kl. 16:15 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnhildur Imsland formaður
Gunnar Stígur Reynisson varaformaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Barði E. Barðason 1. varamaður
Finnur Smári Torfason 3. varamaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir sviðstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Rekstur dagdvalar aldraðra
Málsnúmer 202103065
Rekstur dagdvalar aldraðra færðist yfir til velferðarsviðs sveitarfélagsins frá Skjólgarði í kjölfar yfirtöku Vigdísarholts á Skjólgarði.
Rekstur dagdvalar aldraðra færðist yfir til velferðarsviðs sveitarfélagsins frá Skjólgarði í kjölfar yfirtöku Vigdísarholts á Skjólgarði. Erla greindi frá því að áfram verður dagdvöl aldraðra í Ekrunni með sama hætti og áður og að reksturinn samræmist vel stefnunni um "þjónustan heim".
2.
Forstöðumaður stuðnings- og virkniþjónustu
Málsnúmer 202105082
Auglýst var starf forstöðumanns stuðnings-og virkniþjónustu velferðarsviðs.
Erla gerði grein fyrir því að ráðið hefur verið í auglýst starf forstöðumanns í stuðnings-og virkniþjónustu velferðarsviðs sem mun verða staðsett í nýuppgerðu húsnæði sviðsins á Víkurbraut 24. María Þórðardóttir iðjuþjálfi hefur verið ráðin hefur störf 1.júlí. Velferðarnefnd fagnar ráðningu Maríu Þórðardóttur.
3.
Þjónustukjarni í Mjallhvít
Málsnúmer 202104100
Í kjölfar yfirtöku Vigdísarholts á starfsemi Skjólgarð mun starfsemi Mjallhvítar færist undir velferðarsvið.
Erla gerði grein fyrir að reiknað sé með að starfsemi Mjallhvítar færist að öllum líkindum undir velferðarsvið 1. júní nk. Íbúar í Mjallhvítar munu útskrifast frá Skjólgarði og vera í sjálfstæðri búsetu með þéttum stuðningi frá stuðnings-og virkniþjónustu (félagsleg heimaþjónusta).