Velferðarnefnd
52. fundur
18. ágúst 2026
kl.
16:15
-
18:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Tinna Rut Sigurðardóttir
formaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Ingólfur Guðni Einarsson
aðalmaður
Lars Jóhann Andrésson
aðalmaður
Amor Joy Pepito Mantilla
Áheyrnarfulltrúi til vara
Lena Hrönn Marteinsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Erindisbréf velferðarnefndar og ráða undir velferðarnefnd
Erindisbréf velferðarnefndar lagt fram til kynningar. Auk þess verða lögð fram til kynningar erindisbréf fjölmenningarráðs, notendaráðs fatlaðs fólks og öldungaráðs.Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Fjölmenningarráð sat fundinn undir fyrsta og öðrum lið fundarins.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við erindisbréf nefndarinnar og ráða sem undir hana heyra.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við erindisbréf nefndarinnar og ráða sem undir hana heyra.
2.
Fundargátt sveitarfélagsins - kynning fyrir nefnd
Kynning á fundargátt sveitarfélagsins https://fundargatt.hornafjordur.is/login/. Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Velferðarnefnd og fjölmenningaráð þakkar Jónu Benný fyrir yfirferðina.
3.
Gæðahandbók
Verkefnastjóri þjónustu og gæðamála, í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk velferðarsviðs, hefur undanfarna mánuði unnið að gerð gæðahandbókar fyrir velferðarsvið. Nú liggur fyrir 1. útgáfa handbókarinnar sem lögð er fyrir velferðarnefnd til kynningar og umfjöllunar.
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar þakkar sviðsstjóra fyrir kynningu og ítarlega yfirferð á fyrstu útgáfu Gæðahandbókar velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir starfsárin 2026?2027. Velferðarnefnd lýsir yfir mikilli ánægju með vandaða framsetningu handbókarinnar, sem og þá áherslu sem þar er lögð á hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar (Gentle Teaching), jafnrétti, inngildingu og lagaleg réttindi jafnt þjónustunotenda sem starfsfólks.
Velferðarnefnd samþykkir handbókina fyrir sitt leyti sem stefnumarkandi gæðaskjal fyrir velferðarsvið og felur sviðsstjóra og stjórnanda stuðnings- og virkniþjónustu að fylgja eftir innleiðingu hennar og kynningu fyrir starfsfólki á öllum starfsstöðvum sviðsins.

4.
Fjölmenningarráð - 2026-2030
Verkefnastjóri fjölmenningar, inngildingar og jafnréttismála leggur fram minnisblað þar sem óskað er eftir því að málaflokkurinn fái fjármagn eyrnamerkt honum til ráðstöfunar í viðburðahald í tengslum við fjölmenningar, inngildingar og jafnréttismál.
Velferðarnefnd tekur vel í erindi verkefnastjóra fjölmenningar, inngildingar og jafnréttismála og felur starfsmanni og sviðsstjóra velferðarsviðs að vinna áfram að málinu samhliða fjárhagsáætlunargerð í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Öldungaráð - 22
Fundargerð 22. fundar öldungaráðs sem haldinn var 12. maí síðastliðinn lögð fram til kynningar.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við fundargerð öldungaráðs.
6.
Frumkvæðisathugun um eftirlit með fóstuheimilum
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) sinnir eftirliti með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli barnaverndarlaga. Samkvæmt 14. gr. laga um GEV hefur stofnunin að eigin frumkvæði eftirlit með gæðum þjónustu. Stofnunin, að beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins (FRN), hóf frumkvæðisathugun á eftirliti með fósturheimulum í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um aðstæður á fósturheimilinu Bakkakoti og umræðu um skort á eftirliti með fósturheimilum.Nú liggur fyrir niðurstöður frumkvæðisathugunar GEV, farið verður yfir niðurstöðurnar, stöðu mála innan Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar (BFSH) og þær úrbætur sem GEV leggur til að farið verði í innan barnaverndarþjónustunnar á landsvísu.
Velferðarnefnd tekur undir bókun fagráðs BFSH og fagnar því að allir fósturforeldrar á vegum þjónustunnar sem voru án fósturleyfis hafi þegar lagt inn umsóknir til GEV.
Velferðarnefnd lýst vel á framlagða aðgerðaáætlun og tímalínu sem lögð er fram til að tryggja að þjónustan mæti öllum ítrustu gæðakröfum sem til hennar eru gerðar. Uppfærðar verklagsreglur skulu lagðar fyrir fjölskyldunefnd Fjarðabyggðar og velferðarnefnd Hornafjarðar til endanlegrar samþykktar eigi síðar en í september 2026.
Lokaskýrsla um framkvæmd úrbóta skal send GEV fyrir tilsettan frest þann 11. janúar 2027.
Velferðarnefnd þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir kynninguna.

7.
Deiliskipulag - endurskoðun deiliskipulags Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands, HSU og deiliskipulags austan Víkurbrautar, svæði S3
Bæjarstjórn hefur ákveðið að hefja skuli undirbúning að endurskoðun deiliskipulags á svæðinu við Víkurbraut 24-30 og nærliggjandi reitum. Verkefnið tengist stefnumörkun sveitarfélagsins um uppbyggingu velferðarkjarna á svæðinu, þar sem horft verði heildstætt til framtíðaruppbyggingar búsetuúrræða, öldrunarþjónustu, þjónustu við fatlað fólk, hjúkrunarheimilis og heilbrigðisþjónustu.Í stefnu um framtíðarsýn í málefnum aldraðra 2026-2034 er lögð áhersla á fjölbreytta þjónustu, inngildandi samfélag og sjálfstætt líf, auk þess sem sérstaklega er gert ráð fyrir að unnið verði að endurskoðun deiliskipulags á Víkurbraut S3 og reit heilbrigðisstofnunarinnar með það að markmiði að móta velferðarkjarna.Samhliða þessari vinnu verður stofnaður vinnuhópur sérfræðinga og hagsmunaaðila sem mun leiða vinnuna. Lagt er fram til kynningar erindisbréf vinnuhópsins sem samþykkt var í bæjarráði 28.7.2026.
Velferðarnefnd þakkar fyrir kynninguna og fagnar því að til standi að stofna vinnuhóp samhliða þessu stóra og mikilvæga verkefni. Þá er það sérstaklega ánægjulegt að skipaður vinnuhópur spanni jafnt breiðan hóp hagaðila og raun ber vitni.
Velferðarnefnd leggur áherslu á að samhliða vinnu hópsins verði viðhaft gott íbúasamráð m.a. með vinnustofum og að upplýsingagjöf um framvindu verkefnisins verði góð og gerðar verði skýrar fundargerðir sem lagðar verða fyrir viðeigandi fagnefndir og ráð sveitarfélagsins.
Velferðarnefnd hlakkar til að fylgjast með þróun velferðarkjarna á svæðinu og mun fylgjast náið með verkefninu meðan það þróast og vinnst áfram.

8.
Reglur um akstursþjónustu aldraðra
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglur um akstursþjónustu aldraðra.
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar breytingatillögur á reglum um akstursþjónustu aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Málinu er vísað til frekari umræðu í öldungaráði og bæjarráði.
Málinu er vísað til frekari umræðu í öldungaráði og bæjarráði.
9.
Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar breytingatillögur á reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Málinu er vísað til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks og bæjarráði.
Málinu er vísað til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks og bæjarráði.
10.
Reglur um stuðningsþjónustu
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum um stuðningsþjónustu.
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar breytingatillögur á reglum um stuðningsþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Málinu er vísað til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks, öldungaráði og bæjarráði.
Málinu er vísað til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks, öldungaráði og bæjarráði.
11.
Reglur um stoðþjónustu
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum um stoðþjónustu.
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar breytingatillögur á reglum um stuðningsþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Málinu er vísað til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks, öldungaráði og bæjarráði.
Málinu er vísað til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks, öldungaráði og bæjarráði.
12.
Umsögn um áform um breytingu á lögum nr.382018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
Áformaðar eru breytingar á gildandi lögum um þjónustu við fatlað fólk. Markmiðið er að bæta lagaframkvæmd og tryggja betur jafnræði og aðgengi fatlaðs fólks að þjónustu og aðstoð sem lögin kveða á um.Óskað var eftir umsögnum hagsmunaaðila inn á samráðsgátt stjórnvalda og rann umsagnarfrestur út þann 16.8.2026. Sveitarfélagið sendi umsögn og er hún lögð fram til kynningar á fundinum.
Velferðarnefnd fagnar því að unnið sé að uppfærslu á lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og tekur í megin dráttum undir þau áform og markmið sem sett eru fram.
Velferðarnefnd leggur þó ríka áherslu á að við áframhaldandi vinnu á breytingum laganna verði horft til þátta sem geta skapað sérstöðu fyrir hvert og eitt sveitarfélag og þá sérstaklega þau sem teljast smærri og landfræðilega afmörkuð líkt og Sveitarfélagið Hornafjörður. Velferðarnefnd telur öruggt að með því að skylda sveitarfélög, til að vera hluti af 6000 íbúa þjónustusvæði, muni ekki hljótast af sá ágóði sem stjórnvöld áætla að skapist við áformin. Þvert á móti geti sameining sem þessi haft neikvæðar afleiðingar fyrir þjónustuna t.d. vegna þess að hún hefur í för með sér flóknari stjórnsýslu, skapar aukna fjarlægð milli þjónustunotenda og þjónutuveitanda, stuðli ekki að samnýtingu úrræða og mannauðs og minnki líkur á því að styrkleikar nærsamfélagsins skili sér í einstaklingsbundinni og góðri þjónustu fyrir þjónustunotendur. Þá telur velferðarnefnd ekki eðlilegt að veita einum viðkvæmum hóp í samfélaginu forgang að húsnæðisúrræðum sveitarfélaga líkt og áformin gera ráð fyrir.
Velferðarnefnd hvetur stjórnvöld til að endurskoða áform sín og horfa til þess að veita undanþáguheimildir frá stærð þjónustusvæða eða að um verði að ræða viðmið um íbúafjölda í stað fortakanlausrar kröfu.
Þá leggur velferðarnefnd áherslu á að ef af áformunum verður, þá verði sveitarfélögum veitt nægjanlegt svigrúm til þess að vinna að sameiningu þjónustusvæða og þeirri aðlögun sem hún mun fela í sér.