Fara í efni

Velferðarnefnd

53. fundur
15. september 2026 kl. 16:00 - 17:20
í Miðgarði
Nefndarmenn
Tinna Rut Sigurðardóttir formaður
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir varaformaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður
Lars Jóhann Andrésson aðalmaður
Amor Joy Pepito Mantilla Áheyrnarfulltrúi til vara
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir Stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 29
Málsnúmer 2607006F
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við fundargerð fjölmenningarráðs.
2.
Samstarfssamningur um akstursþjónustu fyrir Skjólgarð
Málsnúmer 202607069
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs, ásamt drögum að samstarfssamningi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vigdísarholts ehf. um framkvæmd akstursþjónustu fyrir íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn.Samningurinn felur í sér að velferðarsvið tekur að sér að sinna nauðsynlegum akstri íbúa Skjólgarðs til að sækja heilbrigðis- og læknisþjónustu að beiðni rekstraraðila. Aksturinn verður framkvæmdur af starfsmanni stuðnings- og virkniþjónustu á sérútbúinni bifreið akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks. Sveitarfélagið mun innheimta gjald fyrir þjónustuna hjá Vigdísarholti ehf. sem tekur mið af raunkostnaði við aksturinn, launum bílstjóra og rekstri bifreiðarinnar.Með samningnum er stuðlað að hagkvæmri nýtingu á innviðum og starfsfólki sveitarfélagsins auk þess sem íbúum Skjólgarðs er tryggður öruggur og faglegur flutningur án þess að útgjöld sveitarsjóðs aukist.

Velferðarnefnd fagnar fyrirhuguðu samstarfi Velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vigdísarholts ehf. um akstursþjónustu fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs. Nefndin telur gerð samningsins til þess fallna að auka hagkvæmni í rekstri og nýtingu tækja og mannafla sveitarfélagsins, auk þess að tryggja öryggi og gæði flutninga fyrir íbúa. Velferðarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar málinu til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði og til frekari umfjöllunar í öldungaráði og notendaráði um málefni fatlaðs fólks.
3.
Akstursþjónusta íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
Málsnúmer 202609033
Fram hefur komið ósk um að Sveitarfélagið Hornafjörður taki að sér að sinna akstri íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði vegna einkaerinda. Nýverið var gerður samstarfssamningur milli velferðarsviðs og Vigdísarholts ehf. sem kveður á um að Vigdísarholt geti nýtt þjónustu sérútbúinnar bifreiðar akstursþjónustu aldraðra hjá sveitarfélaginu vegna nauðsynlegrar læknisþjónustu. Sá samningur nær ekki yfir ferðir sem íbúar óska eftir til að sinna einkaerindum.Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra um málið og óskað eftir afstöðu velferðarnefndar til erindisins og ef komi til þjónustunnar, hvernig hún skuli útfærð.
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur tekið til umfjöllunar ósk um að Sveitarfélagið Hornafjörður sinni akstursþjónustu fyrir íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði vegna ferða í einkaerindum, í ljósi þess að rekstraraðili heimilisins hyggst ekki sinna slíkum akstri.

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að velferðarsvið bjóði íbúum Skjólgarðs upp á akstursþjónustu í einkaerindum milliliðalaust, með fyrirvara um afkastagetu akstursþjónustunnar hverju sinni. Einnig leggur velferðarnefnd til að þetta verði tilraunarverkefni út árið 2027.

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að breytingum á reglum og gjaldskrá Sveitarfélagsins Hornafjarðar um akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks og vísar þeim til frekari umræðu í öldungaráði, notendendaráði um málefni fatlaðs fólks og bæjarráði.
4.
Öldrunarþjónusta í Öræfum
Málsnúmer 202608067
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs, varðandi þróun félagsstarfs, virkni og stoðþjónustu fyrir eldri borgara í Öræfum. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir erindi sem borist hefur frá íbúa á svæðinu um þörf fyrir aukna þjónustu og félagsstarf í sveitinni. Gerð er grein fyrir mikilvægi þess að aðlaga þjónustu sveitarfélagsins að dreifbýlinu með staðbundnum lausnum og fjarbúnaði, en jafnframt áréttað að einstaklingsbundin þjónusta skuli ávallt byggja á formlegu þjónustumati fagaðila velferðarsviðs til að tryggja jafnræði og faglega stjórnsýsluhætti. Lagt er til að ráðist verði í rafræna könnun meðal eldri borgara í Öræfum til að kortleggja áhuga á félagsstarfi, heimaþjónustu og akstursþjónustu. Þá er kynnt tillaga að tilraunaverkefni í vetur sem felur í sér skipulagningu félagsstarfs í Hofgarði, aðstoð við beinar útsendingar á leikfimi frá Ekrunni á Höfn og afmarkaða aksturs- og stuðningsþjónustu á verktakagrundvelli.
Velferðarnefnd fagnar fram komnum hugmyndum um eflingu félagsstarfs og þjónustu við eldri borgara í Öræfum. Nefndin felur starfsmanni að vinna að gerð rafrænnar könnunar meðal eldri borgara í Öræfum með það að markmiði að meta eftirspurn eftir félagsstarfi, heimaþjónustu og akstursþjónustu. Auk þess er lagt til að fagaðilar sviðsins kynni öldrunarþjónustu sveitarfélagsins á svæðinu með kynningarfundi í Hofgarði.

Jafnframt felur nefndin starfsmanni að útfæra fyrirkomulag þjónustunnar nánar og stefna að því að setja af stað tilraunaverkefni í vetur um skipulagt félagsstarf og aðgengi að leikfimi í fjarfundi, frá Ekrunni, í Hofgarði. Endanlegt fyrirkomulag skuli lagt fyrir nefndina á fundi hennar í október.

Málinu vísað til frekari umræðu í öldungaráði.
5.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202510042
Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram minnisblað varðandi fjárhagsstöðu barnaverndarþjónustu á yfirstandandi ári. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir því að útgjöld vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, stuðnings inn á heimilum, vistunar- og meðferðarúrræða stefni fram úr áætlun. Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun að upphæð 6.700.000 kr.
Það er eðli málaflokksins að þarfir notenda eru breytilegar milli ára sem gerir áætlunargerð erfiða.
Velferðarnefnd tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaðinu um nauðsyn þess að tryggja fullnægjandi sérfræðiþjónustu, vistunarúrræði og markvissan stuðning í krefjandi málum. Nefndin leggur áherslu á að snemmtæk og fullnægjandi íhlutun er grundvöllur þess að tryggja öryggi og velferð barna, auk þess að fyrirbyggja enn meiri útgjöld til lengri tíma litið.
Velferðarnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram með fjármálastjóra.

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti beiðni um aukið fjármagn og vísar beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 6.700.000 til bæjarráðs til frekari umræðu.
6.
Þjónustuhandbók - Dagþjónusta eldri borgara
Málsnúmer 202607070
Lögð eru fram til kynningar og umræðu fyrstu drög að nýrri þjónustuhandbók fyrir starfsfólk dagþjónustu aldraðra í Ekrunni.Dagþjónustan er mikilvægt stuðningsúrræði sem sem miðar að því að styðja aldraða einstaklinga til sjálfshjálpar og gera þeim kleift að búa áfram á eigin heimilum. Við þjónustuna starfa fjórir starfsmenn í 1,7 stöðugildum og er opið alla virka daga frá kl. 10:00 til 15:00. Starfsemin fer fram í sérrými í Ekrunni með áherslu á iðju og virkni, auk þess sem notendur hafa aðgang að slökunarherbergi og snæða sameiginlegan hádegisverð í Ekrusalnum í samstarfi við félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga.Handbókinni er ætlað að vera hagnýtur leiðarvísir fyrir starfsfólk þar sem kveðið er á um helstu verkefni, ábyrgðarmörk og faglegar skyldur, m.a. varðandi samstarf við heimahjúkrun, þagnarskyldu, vinnuvernd og gæðaeftirlit. Þá byggir handbókin á gildandi kröfulýsingu stjórnvalda fyrir öldrunarþjónustu og hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar (Gentle Teaching) sem höfð er að leiðarljósi í allri velferðar- og stuðningsþjónustu sveitarfélagsins.
Velferðarnefnd þakkar framlagða kynningu á fyrstu drögum að þjónustuhandbók fyrir dagþjónustu aldraðra í Ekrunni. Nefndin fagnar framtakinu sem er mikilvægur liður í að efla gæði, samræmi og öryggi í þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu.
Handbókin er liður í úrbótum úttektar á Stuðnings og virkniþjónustu. Nefndin lýsir ánægju með að hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar sé lögð til grundvallar og vísar drögunum til áframhaldandi vinnslu og lokafrágangs á velferðarsviði.
7.
Reglur um notendastýrða persónulega aðstoð
Málsnúmer 202508029
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum um notendastýrða persónulega aðstoð
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar breytingatillögur á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) til samræmis við lög nr. 80/2025 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, lög nr. 38/2018 og lög nr. 88/2021.

Velferðarnefnd vísar málinu áfram til frekari umræðu í bæjarráði og notendaráði um málefni fatlaðs fólks.
8.
Reglur um notendasamninga
Málsnúmer 202409036
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum um notendasamninga.
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti breytingatillögur á reglum um notendasamninga við einstaklinga og barnafjölskyldur til samræmis við lög nr. 80/2025 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, lög nr. 38/2018, lög nr. 40/1991 og lög nr. 88/2021.

Málinu er vísað áfram til frekari umræðu í notendaráði um málefni fatlaðs fólks og bæjarráði.
9.
Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um frístundasþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni
Málsnúmer 202410051
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir breytingatillögur á reglum um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni til samræmis við lög nr. 80/2025 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, lög nr. 19/2013 um Barnasáttmálann, lög nr. 38/2018 og lög nr. 88/2021.

Málinu er vísað til frekari umræðu í fræðslu- og frístundanefnd, notendaráði um málefni fatlaðs fólks og bæjarráði.
10.
Reglur um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra
Málsnúmer 202501013
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra
Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti breytingatillögur á reglum um þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra til samræmis við lög nr. 80/2025 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, lög nr. 19/2013 um Barnasáttmálann, lög nr. 38/2018, lög nr. 86/2021 um farsæld barna og lög nr. 88/2021.

Málinu er vísað til frekari umræðu í bæjarráði og notendaráði um málefni fatlaðs fólks.