Velferðarnefnd
55. fundur
17. nóvember 2026
kl.
16:00
-
18:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Tinna Rut Sigurðardóttir
formaður
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir
varaformaður
Ingólfur Guðni Einarsson
aðalmaður
Lars Jóhann Andrésson
aðalmaður
Vaka Sif Tjörvadóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Ágúst Ágústsson
Áheyrnarfulltrúi til vara
Sveinbjörg Jónsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fagráð Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Fundargerð fagráðs Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagins Hornafjarðar sem fram fór 2.11.2026 lögð fram til kynningar.
Velferðarnefnd þakkar sviðsstjóra fyrir yfirferðina. Nefndin gerir ekki athugasemd við fundargerðina.
2.
Skipulagsbreytingar á Velferðarsviði 2027
Lögð er fram tillaga að nýju skipuriti og breyttu stjórnskipulagi á velferðarsviði Sveitarfélagsins Hornafjarðar í framhaldi af úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu frá júní 2026. Breytingarnar fela í sér að undir þjónustustoðunum tveimur eru mótuð fjögur teymi undir forystu jafn margra teymisstjóra. Þjónustuteymi fatlaðs fólks, öldrunar- og stuðningsþjónustuteymi, barnaverndar- og félagsþjónustuteymi, og fjölskyldu- og ráðgjafateymi. Teymisstjórar bera faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á sínum málaflokkum og mynda stjórnendateymi sviðsins ásamt sviðsstjóra.
Einnig verða ákvarðanir um þjónustu og afgreiðsla umsókna unnin í þremur undirteymum sem vinna þvert á sviðið eftir eðli mála sem undir þau falla. Um er að ræða fagteymi velferðarsviðs sem fjallar um afgreiðslu mála skv. félagsþjónustu lögum og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, MóMa-teymi samþættrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar (áður Þjónustan heim) og endurhæfingarteymi sem fjallar um vinnslu endurhæfingaráætlanna.
Samhliða er kveðið á um miðlæg innkaup og stoðhlutverk verkefnastjóra þjónustu og gæða og tilfærslu samfélags- og fjölmenningarmála yfir á stjórnsýslusvið.
Málið er lagt fram til kynningar

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar skipulagsbreytingar á velferðarsviði Sveitarfélagsins Hornafjarðar og nýtt skipurit sviðsins. Nefndin fagnar því að brugðist sé við ábendingum í úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu frá júní 2026.
Nefndin lýsir ánægju með áform um innleiðingu vaktleiðtoga á kvöld- og helgarvaktir í stoðþjónustu til að styrkja faglegt starf og vinnuaðstæður, sem og þær úrbætur sem unnið er að á starfsaðstöðu í Ekru og Miðgarði.
Nefndin leggur áherslu á að unnið verði markvisst að heildstæðri endurskoðun allra reglna, umsóknareyðublaða og gæðahandbókar sviðsins fyrir árslok 2027 og felur sviðsstjóra að leggja fram formlega úrbótaáætlun.
Nefndin samþykkir jafnframt fyrir sitt leyti flutning fjölmenningarráðs frá velferðarnefnd til atvinnu- og menningarmálanefndar og tilfærslu á stöðugildi samfélags- og fjölmenningarfulltrúa yfir á stjórnsýslusvið.

3.
Samræmd móttaka flóttafólks
Lögð eru fram til umfjöllunar drög að IV. viðauka við þjónustusamning milli félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um samræmda móttöku flóttafólks. Með viðaukanum er lagt til að gildistími samningsins verði framlengdur til 31. desember 2027, greiðslufyrirkomulagi breytt í mánaðarlegt uppgjör og kveðið á um fyrirkomulag fjölskyldusameininga og aðlögun að lagabreytingum.
Velferðarnefnd hefur farið yfir fyrirliggjandi drög að IV. viðauka við þjónustusamning milli félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um samræmda móttöku flóttafólks.
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að framlengja samninginn til ársloka 2027 með fyrirvara um breytingar í samræmi við umræðu á fundinum.
Velferðarnefnd vísar málinu til bæjarráðs til frekari umræðu
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að framlengja samninginn til ársloka 2027 með fyrirvara um breytingar í samræmi við umræðu á fundinum.
Velferðarnefnd vísar málinu til bæjarráðs til frekari umræðu
4.
Gjaldskrár velferðarsviðs 2027
Lögð eru fram til umfjöllunar og afgreiðslu í velferðarnefnd drög að gjaldskrám velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2027, sem taka eiga gildi þann 1. janúar næstkomandi. Málið varðar annars vegar endurskoðun á gjaldskrá um greiðslur til stuðningsforeldra og hins vegar uppfærslu á gjaldskrá vegna akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks.
Kynntir eru tveir kostir við ákvörðun fjárhæða í gjaldskrá greiðslna til stuðningsforeldra, annars vegar hækkun í samræmi við launavísitölu í lok október (5,44%) og hins vegar hækkun í samræmi við breytingar á vinnumarkaði (3,25%).
Breytingar á gjaldskrá vegna akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks fela í sér aðlögun á kílómetramörkum og skilgreiningu gjaldsvæða vegna opnunar nýs vegar yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er gerð tillaga um 2,5% hækkun á fargjöldum.

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að gjaldskrá um greiðslur til stuðningsforeldra fyrir árið 2027 með hækkun í samræmi við launavísitölu, sem og drög að gjaldskrá vegna akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks sem hækkar um 2,5% í samræmi við verðbólgumarkmið ríkistjórnarinnar.
Gjaldskrárnar taka gildi 1. janúar 2027 og er vísað til bæjarráðs til frekari umræðu.
Gjaldskrárnar taka gildi 1. janúar 2027 og er vísað til bæjarráðs til frekari umræðu.
5.
Samræmd grunnskráning félagsþjónustu
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs þar sem gerð er grein fyrir 1. útgáfu leiðbeininga félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um samræmda grunnskráningu í félagsþjónustu og erindi ráðuneytisins um fjárhagslegan stuðning úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna áskriftarkostnaðar þjónustukerfa.
Velferðarnefnd þakkar sviðsstjóra fyrir kynningu á 1. útgáfu leiðbeininga félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um samræmda grunnskráningu í félagsþjónustu, sem og erindi ráðuneytisins um fjárhagslegan stuðning úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna áskriftarkostnaðar þjónustukerfa.
Nefndin fagnar að innleiðing á þjónustukerfinu Dala.Care hjá velferðarsviði er á lokastigi og að kerfið uppfyllir settar kröfur um samræmda skráningu. Með vísan til þess að stuðningur Jöfnunarsjóðs nemur 1.400 kr. á hvern virkan notanda á mánuði er gert ráð fyrir að langstærsti hluti rekstrarkostnaðar kerfisins fáist endurgreiddur.
Velferðarnefnd felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir.