Velferðarnefnd
6. fundur
12. ágúst 2021
kl.
16:15
-
17:40
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Gunnhildur Imsland
formaður
Gunnar Stígur Reynisson
varaformaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir
sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir
sviðstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
Lögð fram kynning á innihaldi nýrrar löggjafar er varðar umfangsmiklar kerfisbreytingar í þágu farsældar barna á Íslandi. Markmið laganna er að tryggja að börn og fjölskyldur þeirra fái nauðsynlega þjónustu snemma og verði ekki send á eigin ábyrgð milli aðila innan sveitarfélaga og ríkisstofnana án aðstoðar. Lög um þessar kerfisbreytingar voru samþykkt af Alþingi á nýafstöðnu þingi. Lögin taka gildi í upphafi árs 2022 og unnið verður að innleiðingu verkferla í samræmi við lögin fram að því.
Nefndin fagnar ofangreindum lögum og sérstaklega breytingum á lögum um barnavernd þar sem lagðar verða niður pólitískar barnaverndarnefndir.
Nefndin fagnar ofangreindum lögum og sérstaklega breytingum á lögum um barnavernd þar sem lagðar verða niður pólitískar barnaverndarnefndir.
2.
Staðan í starfsemi velferðarsviðs
Nú er starfsemi velferðarsviðs komin undir eitt þak á Víkurbraut 24 sem hefur verið endurbætt m.t.t. starfsemi sviðsins. Starfsemi velferðarsviðs skiptist í annars vegar í fjölskyldu- og félagsþjónustu og hins vegar stuðnings- og virkniþjónustu. Höfuðstöðvar sviðsins eru að Víkurbraut 24, en þjónustan fer að auki fram í heimahúsum notenda, félagsmiðstöðinni á Víkurbraut 30 í Ekrunni og í Selinu (bakhús á Víkurbraut 24).
3.
Nafnasamkeppni - húsnæði Víkurbrautar 24
Nú er starfsemi velferðarsviðs komin undir eitt þak á Víkurbraut 24 sem hefur verið endurbætt m.t.t. starfseminnar. Velt hefur verið upp þeirri hugmynd að hafa nafnasamkeppni um heiti á húsnæðinu þar sem íbúar í Sveitarfélaginu Hornafirði fá tækifæri til að koma með tillögur að nafni þess. Vísað til bæjarráðs til nánari útfærslu.