Fara í efni

Velferðarnefnd

9. fundur
18. nóvember 2021 kl. 16:15 - 17:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Gunnhildur Imsland formaður
Gunnar Stígur Reynisson varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson félagsmálafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson Félagsmálafulltrúi
Dagskrá
1.
Ósk um tilnefningu - Innleiðing laga um þjónustu í þágu farsældar barna.
Málsnúmer 202110082
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur tilnefnt Erlu Björgu Sigurðardóttur sviðsstjóra velferðarsviðs sem tenglið sveitarfélagsins vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Samþykkt samhljóða
2.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202010120
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna felur í sér átta skref og er áætlað að það taki að lágmarki tvö ár að ljúka við innleiðingarhringinn og fá viðurkenninguna Barnvænt sveitarfélag. Nýafstaðið Barnaþing sem var haldið dagana 3. og 4. nóvember í Hafnarskóla og FAS er einn þáttur í stöðumati sem er annað skref í innleiðingunni.
Lagt fram til kynningar
3.
Öldungaráð
Málsnúmer 202111051
Áttundi fundur Öldungaráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar var haldinn á Víkurbraut 24, 22. október sl.
Lagt fram til kynningar
4.
Sigurhæðir samstarf
Málsnúmer 202111020
Velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar er þátttakandi í verkefninu Sigurhæðir, sem veitir þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis. Þjónusta Sigurhæða felur í sér að bjóða konum búsettum á Suðurlandi sem orðið hafa fyrir kynbundnu ofbeldi öruggan vettvang og aðstoð fagfólks til að vinna úr áföllum sem eiga rætur í ofbeldinu. Verkefnið felst einnig í því að efla samstarf milli aðila sem veita þolendum kynbundins ofbeldis þjónustu á Suðurlandi og auka vitund og þekkingu á kynbundnu ofbeldi meðal almennings, fagaðila og samstarfsaðila í verkefninu með þjálfun og fræðslu.
Lagt fram til kynningar
5.
Fjölmenningaráð
Málsnúmer 202111052
Þann 15. apríl sl. samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar myndun fjölmenningarráðs sem skipað yrði fulltrúum íbúa af erlendum uppruna. Ráðið kom saman og fundaði í fyrsta skipti þriðjudaginn 12. október sl.
Lagt fram til kynningar
6.
Fjárbeiðni og rekstrarstyrkur Stígamóta 2021
Málsnúmer 202111041
Sveitarfélaginu hefur borist árleg ósk Stígamóta eftir fjárstuðningi og samstarfi um rekstur starfseminnar. Öll þjónusta Stígamóta við brotaþola er ókeypis og samtökin sinna allri landsbyggðinni.
Lagt til að starfmaður nefndar geri drög að styrktarsamning til þriggja ára.
7.
Þjónustusamningur við Blindrafélagið vegna akstursþjónustu
Málsnúmer 202111057
Blindrafélagið tekur að sér að reka akstursþjónustu fyrir íbúa sveitarfélaga sem eru greindir lögblindir af Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur vegna fötlunar sinnar. Einnig geta aðrir með skilgreinda fötlun rétt á slíkri aksturþjónustu.
Lagt fram til kynningar og starfsmanni falin áframhaldandi vinna við gerð samningsins
8.
Félagslegar íbúðir
Málsnúmer 202010064
Fært í trúnaðarmálabók