Deiliskipulagsbreyting Moto-cross svæði

13.5.2026

Bæjarstjórn Hornafjarðar ákvað á 350. fundi sínum að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Moto-cross svæði á Höfn skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. 

Breytingin felur í sér stækkun á skipulagssvæði og skilgreiningu á nýjum sportgreinum innan skipulagssvæðis, enduro- og fjallahjólabraut. Samhliða breytingunni er landnotkun stækkunar breytt úr landbúnaðarlandi í íþróttasvæði en sú vinna er hluti af endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna á auglýsingatíma frá og með 15. maí til 26. júní 2026 og skal þeim skilað í gegnum skipulagsgáttina undir máli nr. 596/2026 .

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar