Deiliskipulagsbreyting Skaftafell III og IV
Bæjarstjórn Hornafjarðar ákvað á 350. fundi sínum að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skaftafell III og IV skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Breytingin felur í sér að hámarkshæð bygginga verði lækkuð úr 6 m í 4 m. Hámarksflatarmál húsa verður áfram óbreytt eða um 64 m².
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna á auglýsingatíma frá og með 15. maí til 26. júní 2026 og skal þeim skilað í gegnum skipulagsgáttina undir máli nr. 602/2026.
Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar
