Nýtt deiliskipulag Birgi í Suðursveit

13.5.2026

Bæjarstjórn Hornafjarðar ákvað á 350. fundi sínum að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi vegna jarðarinnar Birgi í Suðursveit skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. 

Skipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu 3-4 stjörnu hótels. Skipulagssvæðið er sunnan við þjóðveg 1. Gert er ráð fyrir hótelbyggingu að stærð allt að 6.000 m² með um 216 gistirúmum. Hótelið verður reist úr forsmíðuðum einingum. Norðan við hótelbygginguna er gert ráð fyrir starfsmannaíbúðum á tveimur hæðum.

Samhliða deiliskipulagsgerð er landnotkun vegna áforma breytt úr landbúnaðarlandi í verslunar- og þjónustusvæði en sú vinna er hluti af endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna á auglýsingatíma frá og með 15. maí til 26. júní 2026 og skal þeim skilað í gegnum skipulagsgáttina undir máli nr. 603/2026.

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar