|
|
8. 2011004F - Ungmennaráð Hornafjarðar - 56 |
Formaður Ungmennaráðs Ingunn Ósk Grétarsdóttir fór yfir fundargerð 56. fundar ráðsins. Ingunn er nýr áheyrnarfulltrúi á fundum fræðslu- og tómstundanefndar og Alexandra Hernandez er varamaður hennar. Fræðslu- og tómstundanefnd býður þær velkomnar til þátttöku á fundum nefndarinnar. Fundagerðin samþykkt. |
|
|
|
|
|
1. 202011010 - Skipulag skólamála í Öræfum |
Fræðslu- og tómstundanefnd vill skoða valkosti í skólahaldi í Öræfum með það að markmiði að hagræða í rekstri og styrkja faglegt starf leik- og grunnskólans þar með formlegri tengingu við skólastarf á Höfn. Í Hofgarði eru í vetur 6 nemendur í leikskóla og 2 nemendur í grunnskóla, skólastjóri ber ábyrgð á báðum skólastigunum.
|
Nefndin ræddi kosti og galla eftirfarandi þriggja sviðsmynda um sameiningu við skóla á Höfn: Sviðsmynd 1 Leikskólinn Lambhagi í Hofgarði verði deild í leikskólanum Sjónarhóli og Grunnskólinn í Hofgarði verði deild í Grunnskóla Hornafjarðar (GH). Sviðsmynd 2. Samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði verði starfsstöð/deild í Grunnskóla Hornafjarðar(GH). Sviðsmynd 3 Óbreytt skipulag - samrekinn leik- og grunnskóli sérstök eining undir stjórn skólastjóra. Brynja skólastjóri lagði áherslu á að sviðsmynd 3 hugnaðist starfsfólki í Hofgarði best þ.e. að halda óbreyttu skipulagi og halda þannig sérstöðu sinni. Hún lagði áherslu á að það mættu vera meiri samskipti við skólana á Höfn þótt skólinn væri áfram sérstök eining. Fræðslustjóra falið að leggja kostnaðaráætlun um allar sviðsmyndirnar fyrir fund nefndarinnar 16. desember. Fræðslu- og tómstundanefnd áætlar að funda með íbúum í Öræfum um málið í byrjun næsta árs. |
|
|
Gestir |
Brynja Kristjánsdóttir skólastjóri |
|
|
2. 202011066 - Samræmd próf haust 2020 |
Farið yfir niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk. Fundarmenn lýsa ánægju sinni yfir niðurstöðunum sem eru í flestum þáttum yfir landsmeðaltali. Þórgunnur skólastjóri telur að áherslur skólans og vinna kennaranna sé að skila sér í bættum árangri nemenda. |
|
|
Gestir |
Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri og Birgir Fannar Reynisson fulltrúi foreldra |
|
|
3. 201908014 - Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar |
Efla verkfræðistofa hefur unnið tillögu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Hafnar. Tillögur Eflu eru byggðar á þarfagreiningum starfshópa um íþrótta-, skóla, og útivistarsvæði frá 2015 og 2017, Skipulagsforsögn og Forsendugreiningu sem ráðgjafafyrirtækið Alta vann fyrir sveitarfélagið 2018 og 2019.
|
Brynja Dögg umhverfis- og skipulagsstjóri fór yfir tillögu Eflu að deiliskipulagi miðsvæðis á Höfn. Markmið með deiliskipulaginu er m.a að styrkja miðsvæði bæjarins umhverfis skóla- og íþróttasvæðið og efla svæðið sem aðlaðandi útivistarsvæði til samverustunda og mannfagnaðar, allan ársins hring. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur áherslu á að tryggja þurfi nægilegt rými fyrir skólastarf í grunnskólanum til framtíðar. |
|
|
Gestir |
Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri og Birgir Fannar Reynisson fulltrúi foreldra |
Brynja Dögg Ingólfsdóttir skipulagsstjóri |
|
|
4. 202010021 - Undirbúningstímar og stytting vinnuviku í leikskólum |
Farið var yfir tilgang og markmið kjarasamninga með styttingu vinnuvikunnar og kynnt sú undirbúningsvinna sem farið hefur fram meðal starfsfólks í leikskólanum Sjónarhóli. |
|
|
Gestir |
Maríanna Jónsdóttir skólastjóri, Svava Kristín Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna, Guðrún Einarsdóttir fulltrúi foreldra |
|
|
5. 202010074 - Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagins |
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins lagðar fram. Nefndin gerir ekki athugasemdir við þær. |
|
|
|
6. 202010117 - Skólaþjónusta sveitarfélaga |
Háskólinn á Akureyri hefur sent frá sér tvær skýrslur sem eru hluti af rannsókn um umgjörð og starfshætti skólaþjónustu sveitarfélaga. Markmið rannsóknarinnar er að gefa heildarmynd af umgjörð og starfsháttum þjónustunnar og því hvernig sveitarfélög standa að því að tryggja skólum sínum þann aðgang að skólaþjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum.
|
Kynnt var samantekt og ályktanir í skýrslunum. Niðurstöðurnar munu nýtast sveitarfélögum til að styrkja skólaþjónustu sína með það fyrir augum að efla skóla sem faglegar stofnanir, beina athygli að menntun fyrir alla og jafnræði til náms á landsvísu. Málinu vísað til umræðu í skólunum. Fræðslu- og tómstundanefnd óskar eftir ábendingum og tillögum frá starfsfólki um úrbætur á skólaþjónustu sveitarfélagsins. |
|
|
|
7. 202011051 - Hönnun viðbyggingar V/sundlaug/líkamsrækt |
Frumdrög að hugmyndavinnu um hönnun líkamsræktarstöðvar lögð fram til kynningar og umræðu. Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar því að undirbúningsvinna um byggingu fyrir líkamsrækt sé hafin. |
|
|
|
9. 201912104 - Heilsueflandi samfélag 2020 |
Tvær fundargerðir lýðheilsuráðs lagðar fram. Lýðheilsuráð er samráðshópur um starf Heilsueflandi samfélags, hlutverk ráðsins er að fjalla um forvarnir á breiðum grunni ásamt aðgerðum til að stuðla að bættri almennri heilsu íbúa. |
|
|
|
10. 201911065 - Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ |
Fræðslustjóri fór yfir starf stýrihóps um Barnvænt sveitarfélag til þessa. Stýrihópurinn er staddur á 2. skrefi innleiðingarferlisins. Verið er að afla gagna um líðan, lífsskilyrði og réttindi barna svo hægt sé að búa til mælikvarða á velferð og réttindi barna í sveitarfélaginu. |
|
|
|
|
|
11. 202011077 - Mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum |
Þingsályktunartillaga um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum, 81. mál frá nefndarsviði Alþingis sent til umsagnar
|
Fræðslu- og tómstundanefnd styður þá hvatningu sem fram kemur í þingsályktunartillögunni og hvetur til þess að mennta- og menningarmálaráðherra, í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, móti heildstæða stefnu um faglegan og fjárhagslegan stuðning við afreksfólk í íþróttum. |
|
|
|