|
|
1. 1910014F - Bæjarráð Hornafjarðar - 917 |
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
2. 1910015F - Bæjarráð Hornafjarðar - 918 |
Sæmundur Helgason tók til máls undið lið 17. lið fundargerð SASS og bar upp eftirfarandi bókun. "Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar leggur áherslu á að við fyrirhugaða tilfærslu á rekstri almenningssamgangna, frá sveitarfélögum á Suðurlandi til ríkisins og Vegagerðarinnar um áramótin 2019-2020 verður að tryggja að þjónusta skerðist ekki, heldur þvert á móti þróist og eflist." Forseti bar bókunina upp til samþykktar. Samþykkt með sjö atkvæðum. Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
3. 1910018F - Bæjarráð Hornafjarðar - 919 |
Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 10. lið, sorphirða og sorpeyðing: gjaldskrá. Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 7. lið samantekt á íbúakönnunum um framkvæmdir og 12. lið Framkvæmd ljósleiðari á Mýrum og í Nesjum. Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
4. 1910021F - Bæjarráð Hornafjarðar - 920 |
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
5. 1911003F - Bæjarráð Hornafjarðar - 921 |
Matthildur tók til máls undir 6. lið, samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið fundargerð almannavarnarnefndar. Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
6. 1910011F - Bæjarstjórn Hornafjarðar - 266 |
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
|
|
|
|
7. 201910027 - Álagningarreglur 2020 |
Matthildur greindi frá eftirfarandi tillögu að álagningarreglum 2020: Útsvar 14,52%. Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,45% af fasteignamati. (hám. 0,625%). Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,65% af fasteignamati. (hám. 1,65%). Lóðaleiga 1% af lóðamati. Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati. Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati. Gjaldskrár fyrir söfnunarstöð sorps og gjaldskrá fyrir sorphirðingu og sorpeyðingu fyrir heimili og frístundahús hækka um 14% að undanskildu gjaldi fyrir lífrænan úrgang í moltugerð sem verður óbreytt. Lagði til að álagningareglunum verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
|
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum |
|
|
|
8. 201909012 - Fjárhagsáætlun 2020 |
Matthildur Ásmundardóttir gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2020. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta eru eftirfarandi: Rekstrarniðurstaða 297,3 m.kr. Skuldir í hlutfalli af tekjum 61,5%, framlegð 21,4%, veltufé frá rekstri 556,6 m.kr., veltufé sem hlutfall af tekjum 18,8% og handbært fé í árslok 52,8 m.kr. Afborganir langtímalána 96,5 m.kr. Ný lántaka A og B hluta 360 m.kr. Langtímalán við lánastofnanir 852 m.kr. Fjárfestingaráætlun næsta árs hljóðar upp á 799 m.kr. og ber þar hæst bygging hjúkrunarheimilis, breytingar á Víkurbraut 24, áframhald endurbóta í Vöruhúsi, framkvæmdir á Hafnarbraut og Sandfangari við Grynnslin. Lagði til að fjárhagsáætlun 2020 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
|
Sæmundur Helgason tók til máls undir þessum lið. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir og Matthildur Ásmundardóttir. Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2020 verði vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
9. 201910115 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023 |
Matthildur kynnti þriggja ára áætlun 2021-2023.
|
Forseti lagði til að þriggja ára áætlun verði vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
10. 201910131 - Lánsumsókn 2019 |
Matthildur gerði grein fyrir lántöku og lagði fram eftirfarandi bókun.
|
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins: Sveitarstjórn Hornafjarðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 100.000.000, til 15 ára, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á fráveituframkvæmdum sveitarfélagins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Matthildi Ásmundardóttir, bæjarstjóri, kt. 221177-5419, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns. Forseti bar tillögu um lántöku upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
Hornafjörður_Lt.1911_74 - LSS34 - 100 mkr.pdf |
|
|
|
11. 201909038 - Landskipti:Hvammur: Hrafnavellir |
Erindi frá Jónu Benný Kristjánsdóttur fyrir hönd eigenda að Hvammi í Lóni þar sem óskað er eftir landskiptum. Hrafnavellir L.nr. 225634 verða skipt úr landi Hvamms í Lóni L. nr. 159378, samkvæmt fyrirliggjandi uppdrætti.
|
Lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og vísan í 48 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
12. 201909049 - Beiðni um umsögn: Umsókn um nýtingarleyfi á jarðhita í Hoffelli |
Erindi frá Orkustofnun þar sem óskað er eftir umsögn um nýtingu RARIK á jarðhita í Hoffelli.
|
Bæjarstjórn fagnar að RARIK ohf. muni nýta jarðhita á Hoffelli til hitaveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Forseti lagði til að bæjarstjórn gefi jákvæða umsögn um nýtingarleyfi RARIK á jarðhita til hitaveitu í Hoffelli. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
13. 201809084 - Aðalskipulagsbreyting: Þétting byggðar á Höfn |
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að tillaga vegna breytinga á aðalskipulagi um þéttingu byggðar í innbæ var kynnt fyrir íbúum á fundi í Nýheimum þann 4. nóvember dl.. Markmið með breytingunni er að þétta byggð í innbæ, hún skal vera í samræmi við núverandi byggð hvað varðar tegundir, stærðir, þéttleika og ásýnd byggðar. Með þéttingu byggðar skal tryggja gönguleiðir að opnum svæðum. Ekkert deiliskipulag er til af svæðinu og verður því nýtt deiliskipulag unnið samhliða aðalskipulagsbreytingu. Lagði til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 30. og 31 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
|
Sæmundur Helgason tók til máls undir þessum lið og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd 3. framboðsins. "3. framboðið leggur til að fallið verði frá þessum skipulagshugmyndum í þeirri mynd sem þær eru lagðar fram vegna andstöðu íbúa. Andstaðan hefur m.a. komið fram á íbúafundi sem haldin var um málið 4.nóv s.l., í fjölda athugasemda frá grennd og minnihluta skipulagsnefndar. Þeim athugasemdum hefur ekki verið svarað nægilega vel í framlagðri hugmynd. 3.framboðið bendir á að betra væri að fara í skipulagsvinnu á svæði merkt ÍB5 í aðalskipulagi. Það myndi líka svara betur áformum til lengri tíma, en fyrirséð er að málið um þéttingu byggðar mun ekki skila mörgum lóðum til framtíðar." Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir þessum lið. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sex atkvæðum á móti er Sæmundur Helgason. |
|
|
|
14. 201910091 - Ósk um samþykki sveitarfélagsins vegna sölu á Ægissíðu 55 |
Gunnar Ásgeirsson óskar eftir samþykki sveitarfélagsins á sölu fjárhúsa á Ægissíðu 55 fastanúmer 221-7185 ásamt öllu því sem eignarhlutanum fylgir. Nýr eigandi er JA vet ehf.
|
Lagði til að bæjarstjórn samþykki eigendaskiptin. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
15. 201910070 - Umsókn um lóð: Dalbraut 2a |
Umsókn Andrius Banuskevicius um lóð að Dalbraut 2a, bæjarráð mælti með umsókninni.
|
Lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
16. 201911001 - Deiliskipulag: Borgarhöfn 2 - 3 Suðursveit |
Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að heimiluð sé vinna við deiliskipulag í samræmi við 40. til 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að Borgarhöfn verði deiliskipulögð sem heild.
|
Lagði til að bæjarstjórn heimili að hafin verði vinna að nýju deiliskipulagi fyrir Borgarhöfn. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
17. 201910048 - Sala á eignum sveitarfélagsins |
Húseign sveitarfélagsins að Hagatúni 1, Bjarg var auglýst til sölu, tvö tilboð bárust og mælti bæjarráð með að tilboð frá Austurtanga ehf. að upphæð 41 milljón verði samþykkt.
|
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi kauptilboð. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
18. 201809020 - Skýrsla bæjarstjóra |
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð. |
Skýrsla bæjarstjóra 12.11.2019.pdf |
|
|
|