Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir 2-4 lið
3. 201910027 - Álagningarreglur 2020
Umræður um álagningareglur.
4. 201910115 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023
Umræður um fjárhagsáætlun til þriggja ára.
5. 201809065 - Málefni sláturhúss á Höfn
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
6. 201807037 - Framkvæmd ljósleiðari á Mýrum og í Nesjum
Farið yfir áætlun um framkvæmd ljósleiðara og samskipti við landeigendur. Nýjar teikningar um lagningu ljósleiðara með hitaveitu lagðar fram til kynningar.
7. 201911089 - Kerfisáætlun Landsnet 2020-2029
Erindi frá Landsneti þar sem greint er frá að hafin er vinna við kerfisáætlun 2020-2029 samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003. Samhliða er unnið umhverfismat á umhverfisáhrifum kerfisáætlunar skv. lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Frestur til að senda athugasemdir er til og með 23. desember 2019.
Lagt fram til kynningar.
8. 201910109 - Stjórnsýslukæra um ákvörðun byggingafulltrúa
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru ákvörðunar byggingarfulltrúa frá 21. október sl. um að fjarlægja eða færa til mannvirki sem stendur á lóð nr. 11 í Stafafellsfjöllum lagður fram.
Úrskurðarnefndin telur byggingarfulltrúa hafa virt öll lög og reglur í hvívetna, meðalhófsregluna, andmælaregluna, rannsóknarregluna og jafnræðisregluna.