Erindi frá Ragnheiði Hrafnkelsdóttur vegna fyrirhugaðs niðurrifs á Graðalofti þar sem hún bendir á að það samræmist ekki gildandi skipulagi nema liggi fyrir útgefið byggingarleyfi fyrir endurbyggingu Graðalofts eða lengingu Miklagarðs.
Bæjarráð þakkar fyrir ábendinguna en bendir á að þegar að húsið er farið verði lóðin laus til úthlutunar og skal uppbygging verða í samræmi við gildandi deiliskipulag. Ekki þarf að liggja fyrir byggingaleyfi samhliða niðurrifi hússins. Niðurrif Graðalofts hefur verið tilkynnt til Minjastofnunar sem gerir ekki athugasemd við niðurrif hússins.
3. 201808036 - Umsókn um lóðir D, E og F í Útbæ á Höfn
Lóðin er í innköllunarferli þar sem framkvæmdir eru ekki hafnar ennþá. Lóðarhafinn óskar eftir frest.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. júní 2020.
4. 201502090 - Sameining og slit hlutafélaga sveitarfélagsins
Heiti málsins á við um hin ýmsu félög sem sveitarfélagið hefur verið átt hlut í eða stofnað. Félagið Jöklasetur er til en félagið hefur ekki verið með starfsemi í mörg ár. Taka þarf ákvörðun um hvort leggja eigi félagið niður.
Bæjarráð samþykkir að leggja niður félagið Jöklasetur ses. og felur starfsmönnum að ganga frá málinu.
Gestir
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undirl 4. og 5. lið.
6. 201912091 - Stöðuleyfisumsókn: Bílaplan við Skaftafell: Afgreiðsluhús
Umsókn Arctic Adventures hf. þar sem sótt er um stöðuleyfi fyrir nýtt afgreiðsluhúsnæði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki í staðinn fyrir húsnæði sem var fyrir á staðnum en eyðilagðist í bruna nýlega.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði.