Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 227

Haldinn í ráðhúsi,
25.05.2020 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Reynir Arnarson formaður,
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður,
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður,
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður,
Sigurður Ólafsson aðalmaður,
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar.
Fundargerð ritaði: Matthildur Ásmundardóttir, Hafnarstjóri


Dagskrá: 
Fundargerðir til kynningar
3. 202003067 - Fundargerðir Hafnasambands
Lagt fram til kynningar.
Almenn mál
1. 201911074 - Framkvæmdaleyfi - Varnargarður út í Einholtskletta
Farið yfir framkvæmdir varnargarðs/sandfangara út í Einholtskletta. Von er á starfsmanni Vegagerðarinnar til Hornafjarðar seinna í vikunni, lagt til að Hafnarstjórn fundi með honum vegna þeirra framkvæmda sem eru í vinnslu.
2. 201812073 - Viðhaldsdýpkun 2019
Farið yfir fyrirliggjandi gögn varðandi dýpkun hafnarinnar. Hafnarstjórn mun hittast með starfsmanni Vegagerðarinnar síðar í vikunni.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til baka Prenta