|
|
1. 2009001F - Ungmennaráð Hornafjarðar - 54 |
|
|
|
|
|
2. 202008098 - Opnunartími íþróttahúss |
Fræðslu- og tómstundanefnd mælir með að samið verði við hlutastarfsmann í sundlaug til að leysa sunnudagsopnun í íþróttahúsi til prufu fram að áramótum. Helgaropnun verði ekki lengri en 8 klst hvorn dag. |
|
|
Gestir |
Gunnar Ingi Valgeirsson forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar |
|
|
3. 202009049 - Gjaldskrár fræðslu- og tómstundasviðs |
Gunnar Ingi fór yfir gjaldskrár sundlauga í völdum sveitarfélögum. Hann lagði til að gjaldskrá á útleigu húsnæðis í eigu sveitarfélagsins verði uppfærð og valkostir í leigu skýrðir. Umræður urðu um gjaldskrár skólaþjónustu og skólamáltíða og verður umræðu framhaldið á næsta fundi.
|
|
|
Gestir |
Gunnar Ingi Valgeirsson forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar |
|
|
4. 202009048 - Pólskukennsla yngri barna |
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að kennslu í pólsku verði framhaldið fyrir grunnskólnemendur í 1. - 4. bekk og að sveitarfélagið greiði kostnað við kennsluna. Málinu vísað til ákvörðunar í bæjarráði. |
|
|
|
5. 202006071 - Erindisbréf Ungmennaráðs 2020 |
Bæjarstjórn samþykkti breytingar á erindisbréfi ungmennaráðs um að bæjarráð og fræðslu- og tómstundanefnd fundi sameiginlega með ráðinu tvisvar sinnum á ári. Breytingarnar lagðar fram til kynningar. |
Erindisbréf ungmennaráðs 2020.pdf |
|
|
|
6. 202008032 - Leik- og grunnskólinn í Hofgarði: Starfsáætlun 2020-2021 |
Fræðslu- og tómstundanend samþykkir starfsáætlun leik- og grunnskólans í Hofgarði. |
Starfsáætlun loka.pdf |
|
|
|
7. 201911065 - Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing Barnasáttmála SÞ |
Félagsmálanefnd leggur til að skýrt verði undir hvaða nefnd stýrihópur um Barnvænt sveitarfélag starfar og hver verður yfirmaður starfsmanns. Lesa má nánar um innleiðingu verkefnisins á slóðinni http://barnvaensveitarfelog.is/
|
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir framlagða tillögu um að verkefnið vistist á félagssviði og að starfsmaður þess sé starfsmaður á því sviði. |
Barnvænt sveitarfélag - erindisbréf stýrihóps .pdf |
|
|
|
8. 201903117 - Heimsmarkmið og stefnumótun 2019 |
Heimsmarkmiðin lögð fram til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins. Áætlun um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru framkvæmdaáætlun í þágu mannkynsins, jarðarinnar og hagsældar. Með henni er einnig leitast við að stuðla að friði um gjörvallan heim og þar með auknu frelsi. Í áætluninni eru sett fram 17 markmið sjálfbærrar þróunar og 169 undirmarkmið. Þau eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli hinna þriggja stoða sjálfbærrar þróunar: hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu
|
Fjallað var um drög að skýrslu vegna stefnumótunar sveitarfélagsins og tengingu við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. |
Stefna 4.drög.pdf |
|
|
|
9. 202009050 - Drög að breytingu á viðmiðunarstundaskrá |
Mennta- og menningarmálaráðuneytið óskar eftir umsögnum um tillögu að breytingu á gildandi viðmiðunarstundaskrá grunnskóla frá 2011 sem hefur verið óbreytt síðan. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi frá og með skólaárinu 2021-2022. Umsagnarfrestur er til 30.09.2020. Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
|
Lagt er til að vægi í íslensku verði aukið úr 18,08% í 21,50%, vægi náttúrugreina verði aukið úr 8,33% í 11,01% og vægi valgreina minnkað úr 9,90% í 3,79%. Fyrir liggur umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, þar sem tekið er undir mikilvægi þess að styrkja bæði íslenskukennslu sem og kennslu í náttúrufræðigreinum en jafnframt varað við því að það sé gert með því að skerða fjölbreytt val nemenda í skólum. Sambandið telur þörf á frekari umræðu og vill skoða að ráðist verði í heildarendurskoðun á viðmiðunarstundaskránni, þar sem allar námsgreinar eru undir. Bent er á að fjölga megi kennsludögum, fækka "skertum dögum", sem nú eru 10, endurskoða kennsluhætti og efla náms- og kennslugögn, styrkja starfsþróun kennara og fjölga kennurum með sérhæfingu. Fræðslu- og tómstundanefnd tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og telur mikilvægt að endurskoða viðmiðunarstundaskrána í heild sinni, að þróa kennsluhætti í fyrrgreindum námsgreinum og auka kennsluráðgjöf og sérhæfingu kennara. |
Drög að breytingu á viðmiðunarstundaskrá_.pdf |
Umsögn Sambands ísl. svfl. um viðmiðunarstundaskrá grunnskóla.pdf |
|
|
|
10. 202008068 - Fagháskólanám í leikskólafræðum |
Háskólafélag Suðurlands, Háskóli Íslands og sveitarfélög á Suðurlandi í samvinnu við Keili hafa átt í samstarfi um að bjóða upp á 60 eininga diplómanám í leikskólafræðum. Námið er nýhafið og eru fjórir starfsmenn í leikskólanum Sjónarhóli þátttakendur í því. |
Fag_leikskoli_2020.pdf |
|
|
|
11. 201908014 - Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar |
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur auglýst skipulagslýsingu vegna vinnu við nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði, skóla- og íþróttasvæðis á Höfn. Í skipulagslýsingu kemur fram hvaða áherslur bæjarstjórn hefur við deiliskipulagsgerðina ásamt upplýsingum um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Óskað er eftir umsögnum og ábendingum við lýsinguna fyrir 24. september 2020 og skal skila þeim skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is
|
Skipulagslýsing vegna miðsvæðis Hafnar tekin til umræðu. Markmiðið með nýju skipulagi er að mynda sterkari heild á skóla- og íþróttasvæði í miðkjarna bæjarfélagsins, efla enn frekar aðstöðu til íþróttaiðkunar, lagfæra skólalóðir og efla svæðið sem aðlaðandi útivistarsvæði til samverustunda og mannfagnaðar, allan ársins hring. Fræðslu- og tómstundanefnd líst vel á skipulagslýsinguna.
|
Skóla og íþróttasvæði skipulagslýsing.pdf |
|
|
|