Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Öldungaráð - 22

Haldinn í Miðgarði,
13.05.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður,
Eiríkur Sigurðsson aðalmaður,
Páll Guðmundsson aðalmaður,
Albert Eymundsson aðalmaður,
Ari Jónsson aðalmaður,
Skúli Ingibergur Þórarinsson .
Fundargerð ritaði: Sigrún Bessý Guðmundsdóttir, Stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu


Dagskrá: 
Almenn mál
Sverrir Þórhallsson sat fundinn í fjarveru Svövu Kristbjargar Guðmundsdóttur.
1. 202603029 - Framkvæmd Endurbætur og viðhald í Ekru
Farið yfir stöðu framkvæmda í Ekru. Yfirstandandi eru framkvæmdir við fyrsta áfanga endurbóta á jarðhæð Ekrunnar. Í fyrsta áfanga er Ekrusalurinn og eldhús tekin í gegn ásamt sameiginlegu rými í anddyri hússins.

Sviðsstjóri velferðarsviðs gerir grein fyrir stöðu verkefnisins.


Öldungaráð þakkar sviðstjóra fyrir yfirferða á málinu og gott samstarf á kjörtímabilinu.
2. 202605713 - Starfsemi hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs
Matthildur Ásmundardóttir mætir fyrir hönd Vigdísarholts og gerir grein fyrir starfsemi hjúkrunarheimilisins, bæði almennt og eins hvernig þjónustan er aðlöguð að þeim áskorunum sem koma upp í tengslum við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis sem og á meðan endurbætur í gamla Skjólgarði munu standa yfir.


Öldungaráð þakkar Matthildi fyrir kynningu á stöðunni. Öldungaráð leggur áherslu á að verklýsing á framkvæmdinni verði endurskoðuð í heild sinni áður en til útboðs kemur. Jafnframt leggur ráðið áherslu á að ekki verði rof á framkvæmdum og að endurbætur á gamla Skjólgarð fari í gang strax í kjölfar flutninga íbúa í nýbygginguna.
Öldungaráð vísar bókuninni til umfjöllunar í bæjarráði.
 
Gestir
Matthildur Ásmundardóttir, verkefnastjór hjá Vigdísarholti
Sigurjón Andrésson, bæjarstóri
3. 202601129 - Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu gerir grein fyrir vinnu spretthóps um heilsueflingu eldri borgara sem hóf störf nú fyrir skömmu og stefnir á skil nú á vordögum.

Öldungaráð þakkar Bessýju stjórnanda stuðnings og virkniþjónustu fyrir kynningu á vinnu spretthóps um heilsueflingu eldri borgara.
4. 202306046 - Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu framkvæmda við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis við Skjólgarð.

Einnig gerir hann grein fyrir eftirfylgni með bókun öldungaráðs frá 19. fundi þess sem fram fór þann 01.10.2025.


Öldungaráð þakkar Sigurjóni bæjarstjóra fyrir yfirferð yfir málið og fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu.
 
Gestir
Matthildur Ásmundardóttir, verkefnastjór hjá Vigdísarholti
Sigurjón Andrésson, bæjarstóri
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:40 

Til baka Prenta