1. 202209016 - Málþing - Hafið,fjaran og fólkið-menningararfleið og tækifæri sjávarbyggða
Hafnarstjórn fagnar erindinu og finnst það áhugavert - málinu vísað til Atvinnu- og ferðamálafulltrúa til frekari úrvinnslu.
2. 202209031 - Breyting á deiliskipulagi - Hafnarsvæði við Krossey
Hafnarstjórn er fylgjandi fyrirliggjandi beiðni um breytingu á deiliskipulagi. Að sama skapi óskar stjórnin eftir viðræðum við Skinney-Þinganes um samvinnu á deiliskipulagi við Krosseyjarveg m.t.t. framtíðar-aðgengis.
3. 202203093 - Dýpkun á Grynnslum 2022
Hafnarstjórn fagnar því að Björgun mæti með dýpkunarskipið Álfsnes á morgun og hefji dýpkun á Grynnslunum.