|
Fundinn sátu: Ingunn Ósk Grétarsdóttir , Íris Mist Björnsdóttir , Björgvin Freyr Larsson , Stígur Aðalsteinsson , Selma Ýr Ívarsdóttir , Alexandra Guðrúnardóttir , Agnar Jökull Imsland Arason , Elín Ósk Óskarsdóttir , Laufey Ósk Hafsteinsdóttir , Herdís Ingólfsdóttir Waage . |
|
Fundargerð ritaði: Herdís I. Waage, Tómstundafulltrúi |
|
|
|
1. 202101040 - Kynning á stjórnmálaflokkum á Höfn |
Varðandi kynningar á stjórnmálaflokkum í aðdraganda alþingiskosninga.
|
Ingunn hafði samband við ungliðahreyfingarnar: Ungir Píratar - Uppreisn - SUS - SUF - ungir VG og ungir jafnaðarmenn. Þau tóku öll vel í það að halda kynningarfundi til að fræða ungmenni Hornafjarðar um flokka sína og áherslur. Þar sem kynningarfundirnir fara fram á netinu í apríl þá er hugmyndin um að nota ungmennahús fyrir þá sem vilja skapa smá stemmingu og sitja saman og spjalla áfram eftir kynningarnar. Tímasetning kynningarfundanna verður auglýst síðar. |
|
|
|
2. 202103013 - Leikskólagjöld sveitarfélaga í skugga covid og atvinnuleysis |
Tvö af stærstu sveitarfélögum á landinu hafa lækkað leikskólagjöld vegna atvinnuleysis foreldra.
|
Ungmennaráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar fékk ábendingu um það, að í það minnsta hafa tvö af stærstu sveitarfélögunum á landinu þ.e. Akureyri og Mosfellsbær lækkað leikskólagjöld til þeirra foreldra sem misstu vinnuna vegna Covid. Nú hafa fjölmargir einstaklingar í okkar sveitarfélagi einnig misst vinnuna vegna Covid og áhugavert væri að vita hvort sveitarfélagið hafi með einhverju móti komið á móts við þá einstaklinga með einhverjum lækkunum eða niðurgreiðslum sem eiga t.d. börn á leikskóla? Starfsmanni falið að koma málinu áfram. |
|
|
|
3. 202103014 - Frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, Mál 188. (kosningaaldur) |
Óskað er eftir umsögnum frá ungmennaráðum varðandi frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum (kosningaaldur).
|
Ungmennaráð gleðst yfir því að enn sé verið að vinna í því að lækka kosningaaldur. Ungmennaráð hefur því ekkert á móti þeim breytingum sem lagðar eru fram í frumvarpi þessu og eru breytingunum samþykk. |
|
|
|
4. 202102089 - Skýrsla forvarnardagsins |
Farið yfir skýrslu rannsóknar & greiningar ,,Þetta vilja þau" sem gerð var vegna alþjóðlegs forvarnardags sem er á ári hverju.
|
Skýrsla Rannsóknar & greiningar ,,Þetta vilja þau" var lögð fram til kynningar. Spurningunni: ,,Hvað er í boði fyrir þau ungmenni Hornafjarðar sem ekki stunda skipulagðar íþróttir ?" var varpað fram í umræðum. Það gæti verið efni í næstu rannsókn ungmennaráðs að kanna ,,Hvað viljið þið?" í sambandi við skipulagðar frístundir fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hugmyndin viðruð síðar. |
Skýrsla Forvarnardagsins _ Þetta vilja þau 2020.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30 |