|
|
1. 2104009F - Hafnarstjórn Hornafjarðar - 236 |
Fundargerð samþykkt. |
|
|
|
|
|
2. 202104121 - Lóðarúrdráttur - Hagaleira 9 |
Anna Lilja Ragnarsdóttir fulltrúi Sýslumanns stýrði úrdrætti lóðar við Hagaleiru 9. Tíu umsóknir bárust. Umsækjendur eru: Katrín Steindórsdóttir, Jóhanna Rut Hafliðadóttir, Þorleifi Olsen, Jens Olsen, Rannver Olsen, Stefanía Olsen, Erla Guðrún Einarsdóttir Jón Ingi Pálsson, Ívar Sveinn Friðriksson og Selma Lind Jónsdóttir.
|
Anna Lilja Ragnarsdóttir stýrði lóðarúrdrætti Ásgerður K. Gylfadóttir dró út lóðarumsækjanda og var Rannver Olsen dregin út. Bæjarráð samþykkir að vísa lóðarúthlutuninni til afgreiðslu bæjarstjórnar |
|
|
|
3. 202104111 - Örnefni - Nýr jökull út frá Svínafellsjökli |
Erindi frá Daniel Ben-Yehoshua þar sem hann leggur til að nýr jökull úr Svínafellsjökli verði gefið örnefni.
|
Starfsmönnum falið að vinna að málinu í samráði við heimamenn. |
|
|
|
4. 202104036 - Ósk um aðstöðu í Heppuskóla v. Volaða land |
Erindi frá Join Motion Pictures þar sem óskað er eftir aðstöðu vegna kvikmyndatökur á mynd Hlyns Pálmasonar.
|
Starfsmönnum falið að greina notkunina og kanna skipulag í tengslum við íþróttastarf og leikjanámskeið auk þess að kostnaðarmeta verkefnið út frá gjaldskrá. |
|
|
|
5. 202104130 - Ósk um styrk |
Erindi frá Huldu Björk Svansdóttur þar sem óskað er eftir styrk fyrir hringferð um landið til að vekja athygli á Duchenne vöðvarýrnunarsjúkdómi.
|
Bæjarráð samþykkir að veita 200 þúsund kr. í verkefnið, tekið af óráðstöfuðu. |
|
|
|
6. 202104116 - Styrkbeiðni vegna sjónvarpsþáttar um Örvar Kristjánsson |
Erindi frá Grétari Örvarssyni þar sem óskað er eftir styrk til gerðar sjónvarpsþáttar um Örvar Kristjánsson.
|
Bæjarráð samþykkir að veita 150 þúsund kr. í verkefnið, tekið af lið Humarhátíðar á fjárhagsáætlun 2021. |
|
|
|
7. 202104131 - Ráðning sviðstjóra fræðslu- og frístundasviðs |
Umsóknarfrestur rann út 2. maí níu umskóknir bárust.
|
Bæjarráð felur mannauðstjóra að vinna áfram að málinu. |
|
|
|
8. 202104071 - Ályktun frá aðalfundi Sláturfélagsins Búa svf. |
Lagt fram álit lögfræðings sveitarfélagsins varðandi ráðstöfun lóðar austan megin við sláturhúsið.
|
Unnið er að nýjum lóðarleigusamningum í samræmi við sölu á eign Sláturfélagsins Búa. Hyggist Sláturfélagið Búi ekki nýta fyrirhugaða lóð austan við sláturhúsið undir varanleg mannvirki mun sveitarfélagið afturkalla lóðina skv. reglum sveitarfélagsins um úthlutun lóða. |
|
|
|
9. 202011019 - Hagaleira 14: Umsókn um frest á framkvæmdum |
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Ingvar Snæbjörnsson óska eftir 5 vikna fresti á framkvæmdum að lóðinni Hagaleiru 14 á meðan unnið er að gerð teikninga.
|
Bæjarráð samþykkir frest á framkvæmdum á lóðinni Hagaleiru 14 til 8. júní 2021. |
|
|
|
10. 202104035 - Umsókn um lóð - Ósland L og M |
Humarhöfnin ehf. sækir um lóðir L og M á Óslandi.
|
Bæjarráð getur ekki tekið afstöðu til lóðar L þar sem hún er ekki til úthlutunar. Bæjarráð mælir með úthlutun á lóð M og vísar úthutuninni til afgreiðslu bæjarstjórnar. |
|
|
|
11. 202104132 - Umsókn um lóð að Hagatúni 16 |
Umsókn Lárusar Páls Pálssonar að Hagatúni 16.
|
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. |
|
|
|
12. 202104110 - Umsókn um lóð við höfnina |
GYG óskar eftir að fá afnot af lóð við höfnina vegna efnistöku/dælingu.
|
Bæjarráð getur ekki mælt með úthlutun lóða við Ófeigstanga meðan unnið er að deiliskipulagi í Óslandi. |
|
|
|
13. 202105007 - Forkaupsréttur sveitarfélagsins á jörðinni Hlíðarbergi |
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti á jörðinni Hlíðarbergi. |
|
|
|