|
|
| 1. 202605773 - Aðalskipulagsbreyting - Mói í Nesjum |
Tekin er fyrir beiðni eigenda jarðarinnar Móa í Nesjum um aðalskipulagsbreytingu. Samkvæmt áformum eigenda er fyrirhugað að byggja eitt íbúðarhús, reisa um 12 smáhýsi til útleigu ásamt því að reisa skemmu. Svæðið er skv. aðalskipulagi skilgreint sem landbúnaðarland.
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að erindi hafi borist of seint til að hægt sé að vísa því í yfirstandandi heildarendurskoðun aðalskipulags. Byggingar- og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram í samráði við umsækjanda.
|
|
|
|
| 2. 202010016 - Deiliskipulag Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell |
Tillaga að heildarendurskoðun deiliskipulags í Skaftafelli var auglýst frá 13. febrúar til 20. apríl 2026. Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem fellir hið fyrra úr gildi. Ekki er um að ræða róttæka breytingu á fyrirkomulagi mannvirkja og aðstöðu. Skerpt er á stefnumörkun um ýmis atriði en helstu breytingar felast í rýmkuðum byggingarreit fyrir gestastofu og breyttu fyrirkomulagi starfsmannaíbúða í Sandaseli. Fyrir fundinum liggja umsagnir sem bárust á auglýsingatíma ásamt tillögu að viðbrögðum.
|
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði uppfærð í samræmi við drög að viðbrögðum. Ákvörðun vísað til bæjarstjórnar. |
|
|
|
| 3. 202512050 - Breyting á deiliskipulagi við Jökulsárlón |
Tekin er fyrir verkefnis- og matslýsing vegna breytingar á deiliskipulagi við Jökulsárlón. Náttúruverndarstofnun hefur ákveðið að vinna breytingu á deiliskipulagi vegna breyttra forsendna sem snúa að því að endurskoða staðsetningu megin þjónustusvæðisins austan megin Jökulsár. Breytingar taka til uppbyggingar aðstöðu, aðkomu að svæðinu og bílastæðum, tengingum innan svæðis, legu hringvegar og tengingar við hann. Lýsingin var auglýst til umsagnar frá 12.1.2026 til 9.2.2026 og bárust 10 umsagnir. Fyrir fundinum liggur tillaga að viðbrögðum við innkomnum umsögnum.
|
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að lýsing verði uppfærð í samræmi við svör við umsögnum. Ákvörðun vísað til bæjarstjórnar. |
|
|
|
| 4. 202603114 - Deiliskipulag - Hagahverfi, uppskipting fjölbýlishúsalóða í Hagahverfi |
Tekin er fyrir tillaga starfsmanna umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna uppskiptingu lóða við Kletthaga 7-11.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir uppskiptingu lóða að Kletthaga 7-11 og felur starfsmanni að vinna merkjalýsingu vegna uppskiptingar. |
|
|
|
| 5. 202511097 - Breyting á deiliskipulagi - Borgarhöfn Neðribær |
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi Borgarhöfn Neðribær. Helsta breyting felur í sér stækkun byggingarreita.
|
Hjördís Olgeirsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að falla frá grenndarkynningu óverulegrar breytingar á deiliskipulagi, þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 og samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og felur byggingar- og skipulagsfulltrúa að senda Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun samþykkta deiliskipulagsbreytingu og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar. |
|
|
|
| 6. 202511061 - Breyting á deiliskipulagi Nýtt verslunar og þjónustu svæði á Höfn |
Óveruleg breyting á deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis á Höfn tekin fyrir. Breytingin felur í sér færslu lóðarmarka ásamt stofnun lóðar undir spennistöð.
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að ónefnd gata fái nafnið Fjárhagi. Starfsmanni falið að uppfæra gögn í samræmi við umræður á fundinum. |
|
|
|
| 7. 202501021 - Horn - Deiliskipulag |
Tillaga að deiliskipulagi að Horni var auglýst frá 10.3. til 21.4. 2025. Umsagnir bárust frá HAUST, Vegagerðinnim, Minjastofnun og Landhelgisgæslu Íslands. Farið hefur fram fornleifaskráning og hafa skipulagsgögn verið lagfærð í samræmi við umsagnir.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir samantekt viðbragða við innsendar umsagnir, sérstaklega umsögn Landhelgisgæslunnar. |
|
|
|
| 8. 202605030 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi- Háhóll |
Tekin er fyrir ósk um breytingu á deiliskipulag Háhóll - Dilksnes. Breytingin felur í sér stofnun nýrrar lóðar ásamt lagfæringu aðliggjandi lóða.
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að falla frá grenndarkynningu óverulegrar breytingar á deiliskipulagi, þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 og samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og felur byggingar- og skipulagsfulltrúa að senda Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar samþykkta deiliskipulagsbreytingu og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar. |
|
|
|
| 9. 202511080 - Ósk um umsögn matsáætlun Hoffell |
Tekið er fyrir álit Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) vegna matsáætlunar fyrir uppbyggingu hótels og baðstaðar við Hoffell í Nesjum. Í áliti HMS kemur fram að frekari skýringa og úrvinnslu sé þörf í umhverfismati framkvæmdarinnar, meðal annars varðandi valkosti, áhrif á verndarsvæði, óbyggð víðerni, landslag og ásýnd, fráveitu, vatnsnýtingu og náttúruvá. Þá er lögð sérstök áhersla á áhrif framkvæmdarinnar á grannsvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og verndargildi svæðisins með hliðsjón af stöðu þjóðgarðsins á heimsminjaskrá UNESCO.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur farið yfir álit Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar vegna matsáætlunar fyrir uppbyggingu hótels og baðstaðar við Hoffell í Nesjum. Nefndin tekur undir mikilvægi þess að umhverfismat framkvæmdarinnar verði unnið af kostgæfni með sérstakri áherslu á áhrif á landslag, víðerni, náttúruverndargildi svæðisins og ásýnd í nágrenni Vatnajökulsþjóðgarðs. Þá telur nefndin mikilvægt að valkostagreining verði ítarleg og að áhrif framkvæmdarinnar á innviði, fráveitu, vatnsnýtingu og samfélag verði metin með skýrum hætti áður en frekari ákvarðanir verða teknar. |
|
|
|
| 10. 202604014 - Ný staðsetning hafnarvogar á Höfn |
Fyrir fundinum liggur tillaga að nýrri staðsetningu hafnarvogar. Fyrirhugaðar staðsetningar hafa verið teiknaðar við Krosseyjarveg, Sæbraut og Álaugarveg.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu til umræðu í Hafnarstjórn. |
|
|
|
| 11. 202502009 - Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar |
Tekin er fyrir lokaskýrsla starfshóps um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar. Bæjarráð vísaði þeim hluta sem varðar skipulagsmál til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar hugmydum sem fram komu í skýrslunni til áframhaldandi vinnu við endurskoðun á uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja. |
|
|
|
| 12. 202605031 - Umsókn um byggingarheimild Festi hf |
Lögð fram umsókn Festi hf um leyfi til niðurrifs á eldneytistönkum og tilheyrandi búnaði félagsins á lóð við Mánagarð.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða umsókn. |
|
|
|
| 13. 202605758 - Umsókn um stækkun lóðar Miðós 18 |
Tekin er fyrir umsókn Skinney-Þinganes hf. um stækkun lóðar við Miðós 18. Fram kemur í umsókn ósk um stækkun til suðurs en hluti stækkunar lendir á athafnasvæði 3 skv. gildandi deiliskipulagi.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindi til umræðu í Hafnarstjórn. |
|
|
|
| 14. 202605055 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - Háspennustrengur vegna uppbyggingar norðan Hagahverfis |
Tekin er fyrir umsókn Rarik um lagningu háspennu og lágspennu í tengslum við endurskipulagningu vegna uppbyggingar verslunar- og þjónustu svæði á austan við Dalbraut. Verkefnið verður að hluta til unnið samhliða lagningu bakrásar hitaveitu.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd telur framkvæmdina óverulega, hún hafi ekki í för með sér varanleg áhrif á land og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld, með vísan í 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 772/2012. |
|
|
|
| 15. 202605761 - Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar -Uppseting á verkinu Kríur |
Tekin er fyrir umsókn um uppsetningu listaverksins Kríur. Verkið hefur áður verið uppsett við strandlengjuna vestan við Ósland.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við uppsetningu verksins. |
|
|
|
| 16. 202605774 - Umsókn um staðfestingu merkjalýsingar Hagi í Nesjum |
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Haga, þar sem gert er ráð fyrir uppskiptingu landeignar.
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004
Umsækjanda er bent á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar. |
|
|
|