Persónuvernd
Sveitarfélagið hefur tilnefnt Karl Hrannar Sigurðsson lögmann, sem persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins samkvæmt 35. gr. persónuverndarlaga. Hlutverk persónuverndarfulltrúa er að fylgjast með því að sveitarfélagið fari að persónuverndarlögum.
Einstaklingar sem óska upplýsinga um vinnslu persónuupplýsinga hjá sveitarfélaginu sem og leiðbeiningar um hvernig þeir geta neytt réttar síns samkvæmt ákvæðum laganna, geta beint erindum sínum til Karls Hrannars í gegn um netfangið karl@hornafjordur.is eða fengið upplýsingar í síma 470 8000.
Meðferð persónuupplýsinga hjá Sveitarfélaginu Hornafirði
Almenn upplýsingagjöf um persónuvernd
Í starfsemi Sveitarfélagsins Hornafjarðar er nauðsynlegt að móttaka, skrá, geyma, nota, miðla og meðhöndla að öðru leyti persónuupplýsingar. Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að tengja við tiltekinn einstakling. Hér má finna þær upplýsingar sem sveitarfélaginu ber að veita einstaklingum samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Í tengslum við tiltekna þjónustu eða vinnslu persónuupplýsinga kann Sveitarfélagið Hornafjörður jafnframt að veita nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga eftir því sem við á.
Lögbundið hlutverk og vinnsla persónuupplýsinga
Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur fyrst og fremst með persónuupplýsingar vegna lögbundinna verkefna sveitarfélagsins og við framkvæmd opinbers valds sem sveitarfélaginu hefur verið falið samkvæmt lögum.
Þagnarskylda og öryggi persónuupplýsinga
Starfsmenn og aðrir sem koma að störfum fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð eru bundnir þagnarskyldu samkvæmt lögum eftir því sem við á. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur jafnframt gert ráðstafanir sem miða að því að tryggja örugga meðferð persónuupplýsinga. Aðgangi er stýrt að skjölum, kerfum og húsnæði sveitarfélagsins og takmarkaður við þá sem á honum þurfa að halda starfs síns vegna. Stjórnendur og starfsmenn fá jafnframt reglubundna þjálfun og fræðslu um hvernig gæta skuli að persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga.
Þjónustuaðilar
Sveitarfélagið Hornafjörður nýtir þjónustu frá þjónustuaðilum, t.d. vegna útvistunar verkefna og rekstrar upplýsingakerfa. Slíkir aðilar kunna að hafa aðgang að persónuupplýsingum ef það er nauðsynlegt vegna þjónustunnar sem þeir veita. Þegar þjónustuaðilar vinna persónuupplýsingar fyrir hönd sveitarfélagsins ber þeim samkvæmt persónuverndarlögum og samningi við sveitarfélagið að gæta trúnaðar og tryggja örugga meðferð persónuupplýsinga.
Miðlun persónuupplýsinga
Sveitarfélagið Hornafjörður miðlar ekki persónuupplýsingum nema heimild standi til þess samkvæmt lögum. Í ákveðnum tilvikum kann að vera nauðsynlegt að miðla persónuupplýsingum til annarra opinberra aðila, þjónustuaðila eða annarra aðila þegar slíkt leiðir af lögum eða er nauðsynlegt vegna verkefna sveitarfélagsins.
Varðveisla persónuupplýsinga
Skilaskyld gögn sem innihalda persónuupplýsingar eru varðveitt hjá Sveitarfélaginu Hornafirði í samræmi við lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Varðveislutími persónuupplýsinga getur verið mismunandi eftir eðli upplýsinganna og þeim reglum sem um þær gilda. Þegar heimilt er að eyða persónuupplýsingum og ekki er lengur þörf á að varðveita þær er þeim eytt með öruggum hætti.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingar eiga ýmis réttindi samkvæmt persónuverndarlögum. Þau fela meðal annars í sér rétt til að fá aðgang að persónuupplýsingum um sig, fá rangar upplýsingar leiðréttar, óska eftir eyðingu eða takmörkun vinnslu persónuupplýsinga, andmæla vinnslu og eftir atvikum fá eigin gögn afhent eða flutt til annars ábyrgðaraðila.
Réttindin eru ekki fortakslaus og kunna að vera takmörkuð samkvæmt ákvæðum persónuverndarlaga og annarra laga, meðal annars vegna eðlis starfsemi sveitarfélaga.
Vilji einstaklingur nýta réttindi sín eða fá frekari upplýsingar skal senda erindi á persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins í gegnum netfangið personuvernd@hornafjordur.is. Slíkt erindi er að jafnaði afgreitt innan 30 daga en fresturinn kann að vera framlengdur um tvo mánuði ef beiðnin er sérstaklega umfangsmikil.
Persónuverndarfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur tilnefnt persónuverndarfulltrúa í samræmi við persónuverndarlög. Persónuverndarfulltrúi hefur eftirlit með að meðferð persónuupplýsinga hjá sveitarfélaginu samræmist persónuverndarlögum og er tengiliður gagnvart einstaklingum og Persónuvernd.
Persónuverndarfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar er Karl Hrannar Sigurðsson. Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa í gegnum netfangið personuvernd@hornafjordur.is.
Eftirlitsaðili
Persónuvernd hefur eftirlit með að Sveitarfélagið Hornafjörður fari að ákvæðum persónuverndarlaga. Telji einstaklingur að meðferð persónuupplýsinga hjá sveitarfélaginu samræmist ekki persónuverndarlögum getur hann lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd. Nánari upplýsingar um Persónuvernd má finna á vef stofnunarinnar, www.personuvernd.is.
Ábyrgðaraðili
Sveitarfélagið Hornafjörður er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga sem unnið er með í tengslum við starfsemi sveitarfélagsins.
Samskiptaupplýsingar ábyrgðaraðila:
- Heiti: Sveitarfélagið Hornafjörður
- Kennitala: 590169-4639
- Heimilisfang: Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði
- Símanúmer: 470-8000
- Netfang: afgreidsla@hornafjordur.is