Fara í efni

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026

Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026. Hér má finna helstu upplýsingar um kjörskrá, kjörstaði, opnunartíma og atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 – upplýsingar fyrir kjósendur

Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026. Hér má finna helstu upplýsingar um kjörskrá, kjörstaði, opnunartíma og atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Kjörstaðir og opnunartímar

KjördeildKjörstaðurOpnunartími
Kjördeild I – ÖræfiHofgarðurKl. 10:00–18:00
Kjördeild II – SuðursveitHrollaugsstaðirKl. 10:00–18:00
Kjördeild V – HöfnHeppuskóliKl. 09:00–19:00

Athygli er vakin á breytingu á kjörstöðum í sveitarfélaginu. Kjörstaðirnir í Holti og Heppuskóla hafa verið sameinaðir í einn kjörstað. Kjósendur með lögheimili á Mýrum greiða því atkvæði í Heppuskóla á Höfn.

Yfirkjörstjórn verður með aðsetur í Heppuskóla á kjördag. Kjósendur geta átt von á að verða krafðir um að framvísa skilríkjum á kjörstað.

Kjörskrá

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður aðgengileg til skoðunar í afgreiðslu ráðhússins frá 7. ágúst 2026 og fram að kjördegi.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort þeir séu á kjörskrá. Hægt er að fletta upp kjörstað og kjördeild á kosning.is.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 27. júlí 2026. Þeir sem geta ekki kosið á kjördag geta greitt atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum innanlands eða á kjörstöðum erlendis.