Sveitarfélagið Hornafjörður fékk viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Barnvænt sveitarfélag 4. apríl 2025 við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Höfn að viðstöddum fjölmenni. Viðurkenningin fékkst eftir nokkurra ára innleiðingu á verkefninu með aðkomu fjölmargra aðila þar sem aðkoma barna var sú mikilvægasta.
Lokaskýrsla um innleiðingu á verkefninu.
Hluti af lokaskýrslu sveitarfélagsins til UNICEF um innleiðingu Barnvæns sveitarfélags var úttekt ungmennaráðs á verkefninu. Ungmennaráð Hornafjarðar ákvað að skila úttektinni í formi myndbands sem sjá má hér fyrir ofan.
Myndbandið er einnig hægt að fá textað á ensku og pólsku
Aðgerðaráætlun
Sveitarfélagið vann fyrstu aðgerðaráætlun vegna Barnvæns sveitarfélags í desember 2023
Verkefnið Barnvænt sveitarfélag byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF sem snýr að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með markvissum hætti inn í alla stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga. Verkefnið byggir á eftirfarandi fimm grunnþáttum:
Þekking á réttindum barna
Það sem er barninu fyrir bestu
Jafnræði - að horft sé til réttinda allra barna
Þátttaka barna
Barnvæn nálgun
Innleiðing Barnvæns sveitarfélags felur í sér átta skref og það tekur að lágmarki tvö ár að ljúka við innleiðingarhringinn og fá viðurkenninguna Barnvænt sveitarfélag.
Átta skref að Barnvænu sveitarfélagi
Innleiðing Barnvæns sveitarfélags skiptist í átta skref:
Staðfesting
Sveitarfélagið undirritar samstarfssamning við UNICEF, skipar verkefnastjóra og stofnar stýrihóp með fulltrúum sveitarstjórnar, sviða sveitarfélagsins og ungmennaráðs.
Stöðumat
Staða og réttindi barna í sveitarfélaginu eru metin með spurningalistum, könnunum meðal barna og starfsfólks, ungmennaþingi og samtölum við ólíka hópa barna. Niðurstöðurnar eru teknar saman og sendar UNICEF.
Fræðsla
Börn, starfsfólk og kjörnir fulltrúar fá fræðslu um Barnasáttmálann og réttindi barna. Fræðslan er viðvarandi þáttur í öllu innleiðingarferlinu.
Aðgerðaáætlun
Aðgerðaáætlun er unnin út frá stöðumatinu og tillögum barna. Hornafjörður skilaði fyrstu aðgerðaáætluninni í desember 2023 og UNICEF samþykkti hana í janúar 2024.
Framkvæmd
Aðgerðir áætlunarinnar eru framkvæmdar í samstarfi við starfsfólk, stofnanir og börn í sveitarfélaginu. Stýrihópurinn fylgist með framvindunni og miðlar upplýsingum um verkefnið.
Skýrsla
Þegar aðgerðunum er lokið skilar sveitarfélagið lokaskýrslu til UNICEF. Ungmennaráð skilar einnig eigin mati á innleiðingunni og áhrifum verkefnisins.
Mat og viðurkenning
UNICEF metur árangur verkefnisins. Sveitarfélagið Hornafjörður hlaut viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag 4. apríl 2025. Viðurkenningin gildir í þrjú ár.
Ný markmið og endurmat
Innleiðingunni lýkur ekki með viðurkenningunni. Sveitarfélagið metur stöðu barna að nýju, setur sér ný markmið og vinnur nýja aðgerðaáætlun til að viðhalda viðurkenningunni.
Emil Morávek verkefnastjóri á fræðslu og frístundasviði heldur utan um innleiðingu á verkefninu í Sveitarfélaginu Hornafirði og hann er alltaf til í spjall um verkefnið.