Dagforeldrar
Í sveitarfélaginu er ekki starfandi dagforeldri sem stendur.
Stefnt er að því að börn komist almennt að á leikskóla um 12 mánaða aldur. Tvær undantekningar frá því eru a. ef ekki tekst að ráða starfsfólk á leikskólann og b. að börn sem fæðast að vori geta lent í að komast ekki að fyrr en í ágúst/september þegar þau eru rúmlega eins árs.
Dagforeldri setur sér sína eigin gjaldskrá en sveitarfélagið niðurgreiðir vistunina sbr. reglur um dagþjónustu og reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra frá 12 mánaða aldri. Niðurgreiðslur eru greiddar beint til dagforeldris eftir að skrifað hefur verið undir samning um dvöl barns hjá dagforeldri og honum skilað inn til fræðslu- og frístundasviðs sveitarfélagsins Hafnarbraut 27 Höfn.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá starfsmönnum fræðslu- og frístundasviðs í síma 470-8000 eða á netfanginu afgreidsla@hornafjordur.is.