Fara í efni

Farsæld barna

Á Íslandi eru í gildi lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Í þeim felst að öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda.

Farsældarlöggjöf

Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Lögin eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Barna og fjölskyldustofa aðstoðar sveitarfélög við innleiðingu á lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Sjá lögin í heild.

Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Gott er að hafa í huga að sú þjónusta sem barnið fær er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíkt.

Á heimasíðu Farsældar er kynning á hugtökum ásamt upplýsingum hlutverk tengiliða og málstjóra. Tengiliðir veita þjónustu á fyrsta stigi en þeir gefa hver á sínum stað allar upplýsingar um úrræði sem eru í boði á þeirra vegum. Þegar þjónusta er komin á annað eða þriðja stig er það málstjóri sem hefur yfirumsjón með málefnum barns en málstjórar starfa á velferðasviði sveitarfélagsins.

Upplýsingar um tengiliði og málstjóra í sveitarfélaginu Hornafirði

Eyðublöð um miðlun upplýsinga og beiðni um samþættingu þjónustu. Einkum hugsað fyrir utanaðkomandi aðila sem eru að aðstoða foreldra eða börn því innan skólanna er fyrst og fremst notast við rafræn gögn. 

Netöryggi barna

Í verkfærakistu Netvís finnur þú samantekt á fræðsluefni um vinsæla samfélagsmiðla, fjölskyldustillingar, tilkynningaleiðir og öryggisstillingar. Þar er einnig að finna hlekki inn á margskonar gagnlegt efni til foreldra um netöryggi barna. Verkfærakistan er í stöðugri uppfærslu.

Stöndum saman að vernd barna á netinu

Opna verkfærakistu

Mælaborð um farsæld barna

Í mælaborðinu  eru tekin saman tölfræðigögn er varpa ljósi á farsæld barna á Íslandi með heildstæðum hætti

Opna mælaborð