Fara í efni

Leikskólinn Sjónarhóll

Leikskólinn Sjónarhóll stendur við Kirkjubraut 47 en aðkoma foreldra og barna er frá Víkurbraut 24 á Höfn.

Leikskólinn Sjónarhóll var formlega sameinaður þann 1. apríl 2017 úr leikskólunum Lönguhólum og Krakkakoti.

Á Sjónarhóli er starfað eftir menntastefnu sveitarfélagsins og aðalnámskrá leikskóla. Leikskólinn er umhverfisvænn þar er markviss flokkun og endurvinnsla.

Umsókn um pláss á leikskóla fer í gegnum íbúagátt  sveitarfélagsins.

Athugið að eftirfarandi fylgiskjöl þurfa að fylgja umsókn.

  • Tilkynning um lögheimili - ef nýtt lögheimili hefur ekki verið skrá í þjóðskrá
  • Staðfesting á fyrirhuguðum flutningi í bæinn (t.d. frá fasteignasala eða leigusala)

Gjaldskrá leikskóla í Sveitarfélaginu Hornafirði 1.8. 2025 - 31.7. 2026

Fjöldi klst. á dag Tími Almenn gjöld Gjöld forgangshópa

4

mánaðargjald

13.554 kr.

9.535 kr.

5

mánaðargjald

16.942 kr.

11.919 kr.

6

mánaðargjald

20.331 kr.

14.303 kr.

7

mánaðargjald

23.720 kr.

16.686 kr.

8

mánaðargjald

27.108 kr.

19.070 kr.

15 mín gjald

941 kr.

941 kr.

60 mín gjald

3.387 kr.

2.371 kr.

Skráningardagur

1.882 kr.

1.882 kr.

Veittur er systkinaafsláttur: 35% á vistunargjöld tveggja barna, 50% á vistunargjöld þriggja barna og 60% þegar börnin eru orðin fjögur eða fleiri. Systkinaafsláttur er tengdur á milli skólastiga. 

 

Fæðisgjöld leikskóla falla niður frá og með hausti 2026

 

Skráningardagar


Verð fyrir hvern skráningardag með fullu fæði er kr. 1.882

Boðið er upp á 20 skráningardaga í leikskólanum á hverju skólaári sem foreldrar greiða sérstaklega fyrir. Foreldrar hafa frjálst val um hvort og hversu marga daga þeir nýta en þurfa að vera búnir að láta vita með 6-8 vikna fyrirvara hvort þeir ætla að nýta dagana.

 

Skráningardagar skólaárið 2026-2027 eru;

  • 11. og 12. ágúst (2 dagar)
  • 27., 28., 29. og 30. október (4 dagar)
  • 21. -30. desember (6 dagar)
  • 22., 23. og 24. mars (3 dagar í dymbilviku)
  • 6. – 9. júlí (5 dagar)

Gjaldskrá fyrir leikskólavist fylgir vísitölum framfærslukostnaðar og neysluverðs og er uppreiknuð 1. ágúst ár hvert. Haustið 2026 var hún þó eingöngu hækkuð um 2,5% til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabankans.

Leikskólastjóri

Maríanna Jónsdóttir
Leikskólastjóri Sjónarhóll