Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafjörður“ eins og því er lýst í meðfylgjandi gögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboð skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og er það skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verk þetta skal vinna skv. verklýsingu þessari ásamt meðfylgjandi gögnum. Um er að ræða yfirlagnir gatna, nýlagnir gatna og stíga ásamt viðgerðum á malbiki gatna í Sveitafélagi Hornafjarðar. Framkvæmdarsvæðið er innan þéttbýlis Hafnar.
Verktaki skal skila verkinu af sér til verkkaupa í samræmi við ákvæði útboðsgagna og þess er fram kemur í grein „0.1.7 Framkvæmdatími – verklok“.
Helstu magntölur fyrir árið 2026 eru:
- Yfirlagnir gatna og stíga 586 m2
- Nýlagnir gatna og stíga 8630 m2
- Malbiksviðgerðir 200 m2
Sjá nánar í útboðsgögnum.
Framkvæmdartími
Framkvæmdatími hefst þegar verkkaupi hefur með formlegum hætti skrifað undir tilboð verktaka.
Verktaka er heimilt að ljúka einstökum verkþáttum fyrr.
Einstök verk gætu verið háð öðrum framkvæmdum í sveitarfélaginu sem gæti valdið því að ekki er hægt að ljúka eða hefja verk eftir óskum verktaka.
Útboðsgögn
Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafjörður“. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafjörður“.
Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: utbod@hornafjordur.is og trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafjörður- FYRIRSPURN“. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.
Bjóðendur fá eftirtalin útboðsgögn á rafrænu formi:
- Útboðs- og verklýsing þessi, ásamt tilboðsskrá og drögum að verksamningi.
- Tilboðsskrá á Excel formi.
- Malbikun 2026 - samantekt
Skil og opnun tilboða
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að senda inn tilboði á sérstöku formi eigi síðar en miðvikudaginn 10.06.2026 kl. 14:00, merktu: „Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafjörður- Tilboð” en þá mun opnun tilboða fara fram í fundarsal ráðhús Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Tilboð ásamt fylgigögnum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði og skulu þau hafa borist áður en skilafrestur er runninn út.
Geti bjóðandi ekki komið útfylltum útboðsgögnum á opnunarstað til opnunar, er heimilt að senda undirritað tilboð ásamt fylgigögnum með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út en bjóðandi skal þá jafnframt hafa póstlagt með ábyrgðarpóstsendingu, a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram, gögn sem fylgja eiga tilboðinu og skal staðfesting þess efnis fylgja með tölvupóstinum. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Nánari upplýsingar veitir: Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is sími 470-8000
