Yfirlit yfir verkið
Verkið felst í fullnaðarfrágangi á nýju útiæfingasvæði við Ekru og nær meðal annars til uppgraftar, jarðvegsskipta, uppbyggingar burðarlaga, yfirborðsfrágangs, uppsetningar æfingatækja og frágangs grassvæða, kanta og afmörkunar. Verktaki skal framkvæma alla verkþætti samkvæmt meðfylgjandi teikningum, verklýsingu og fyrirmælum verkkaupa.
Framkvæmdartími
Verklok eru 15. ágúst 2026.
Við undirritun samnings skal liggja fyrir greinargóð tímaáætlun um gang verksins, sem unnin er í samráði við verkkaupa og hann samþykkir. Fari verktaki ekki eftir tímaáætluninni og sinni verkinu ekki sem skyldi, hefur verkkaupi rétt til þess að taka verkið í heild af honum.
Framkvæmdatími hefst þegar verkkaupi og verktaki hafa með formlegum hætti undirritað verksamning.
Gögn
Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og til vara á trausti@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „ÚTIÆFINGASVÆÐI VIÐ EKRU“. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „ÚTIÆFINGASVÆÐI VIÐ EKRU“.
Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „ÚTIÆFINGASVÆÐI VIÐ EKRU - FYRIRSPURN“. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.
Rafræn skil og opnun tilboða
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að senda inn tilboði á sérstöku formi eigi síðar en fimmtudaginn 11.06.2026 kl. 12:00, merktu: „Útiæfingasvæði við Ekru - Tilboð”.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði og eða undirritað á netfangið trausti@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Nánari upplýsingar veitir: Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is sími 470-8000.
