Við viljum minna alla hunda- og kattaeigendur á Hornafirði á að ganga úr skugga um að gæludýrin þeirra séu skráð og að tengiliðaupplýsingar séu réttar og uppfærðar.
Undanfarið höfum við séð nokkrar Facebook-færslur um týnda ketti og af og til hunda sem hafa sloppið lausir. Þegar það gerist getur rétt skráning auðveldað að bera kennsl á gæludýrin og að hafa samband við eiganda þess ef það finnst.
Sveitarfélagið hefur nýlega tekið upp nýtt skráningarkerfi fyrir gæludýr, Icepets. Auk þess að einfalda skráningar og umsýslu býr kerfið til sérstakan QR-kóða fyrir hvert skráð gæludýr, sem getur hjálpað til við að sameina gæludýrin og eigendur þeirra.
Ef þú hefur nýlega flutt, skipt um símanúmer, fengið þér nýtt gæludýr eða einfaldlega ekki yfirfarið skráninguna þína lengi, þá viljum við eindregið hvetja ykkur til þess að gera það.
Það sem þú þarft einfaldlega að gera, er að fara inn á Icepets.is, smella á Innskráning efst í hægra horninu, velja Höfn í Hornafirði og skrá þar inn nýtt gæludýr eða uppfæra upplýsingarnar þínar.
