Fara í efni
19.10.2026 Tilkynningar

Báran - Endurnýjun á gervigrasi

Deildu

Endurnýjun gervigrass í Bárunni

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið„Báran – endurnýjun á gervigrasi“. Um er að ræða almennt opið útboð sem auglýst er á Evrópska efnahagssvæðinu.

Tilboð skal taka til alls þess sem nauðsynlegt er til að ljúka verkinu eins og því er lýst í útboðsgögnum.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í kaupum, afhendingu og uppsetningu á nýju gervigraskerfi án innfylliefna í knattspyrnuhúsinu Bárunni á Höfn í Hornafirði. Innifalið í verkinu er meðal annars gervigras, niðurlögn þess, merkingar, frágangur og allt annað sem nauðsynlegt er til að skila fullfrágengnu gervigrassvæði í samræmi við útboðsgögn.

Útboðið er meðhöndlað sem vöruútboð með uppsetningu og frágangi þar sem meginhluti verksins felst í afhendingu gervigrass og tilheyrandi búnaðar.

Framkvæmdartími

Gert er ráð fyrir að samningur taki gildi 11. desember 2026 eða við undirritun samnings. Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 9. febrúar 2027.

Verktaki skal fyrir undirritun samnings leggja fram verkáætlun sem sýnir framvindu verksins, helstu verkþætti, tímasetningar og mannafla.

Útboðsgögn

Til útboðsgagna verksins teljast:

  1. Útboðs- og verklýsing.
  2. Útboðsteikningar ráðgjafa.
  3. Tilboðsskrá og tilboðsblað.
  4. Skriflegar fyrirspurnir og svör sem fram koma á tilboðstíma.

Útboðið fer fram rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Öll samskipti á tilboðstíma, þar á meðal fyrirspurnir og athugasemdir vegna útboðsgagna, skulu fara fram í gegnum útboðskerfið.

Frestur til að senda inn fyrirspurnir og athugasemdir er til 3. nóvember 2026 og verða svör við fyrirspurnum veitt eigi síðar en 10. nóvember 2026.

Skil og opnun tilboða

Tilboðum skal skila rafrænt í gegnum útboðskerfið Ajour eigi síðar en 24. nóvember 2026 kl. 14:00. Tilboð sem berast eftir að tilboðsfrestur rennur út verða ekki tekin til greina.

Tilboð verða opnuð 24. nóvember 2026 kl. 14:00. Þar sem um rafrænt innkaupaferli er að ræða verður ekki haldinn eiginlegur opnunarfundur. Að opnun lokinni verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum í gegnum Ajour.

Bjóðendur bera ábyrgð á því að tilboð berist innan tilskilins frests og eru hvattir til að hefja skil tímanlega.

Sveitarfélagið Hornafjörður áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum á grundvelli málefnalegra ástæðna og í samræmi við ákvæði útboðsgagna og laga um opinber innkaup.

Opna útboðskerfið Ajour