Vatn er nú komið á aftur á Höfn eftir bilun í vatnsveitunni fyrr í dag, en staðan er enn viðkvæm. Starfsmenn vinna hörðum höndum að því að staðsetja bilunina og greina ástæður hennar.
Til að koma í veg fyrir frekara vatnsleysi og tryggja að hægt sé að halda uppi nauðsynlegum þrýstingi í kerfinu eru íbúar Hafnar beðin um að sýna fyllstu aðgát og takmarka alla óþarfa vatnsnotkun á meðan greining stendur yfir.
Beint er til fólks að:
- Fara sparlega með neysluvatn.
- Fresta meiri háttar vatnsnotkun ef unnt er.
- Gæta þess að kranar og tæki renni ekki að óþörfu.
Nánari upplýsingar verða veittar hér á heimasíðunni síðar.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta veldur og þakkað fyrir samstöðuna og skilninginn.
Umhverfis- og framkvæmdasvið
